[ÖRFÍ]Koffín! Norrænt málþing um orkudrykki og ungt fólk
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Fri Oct 11 12:20:19 GMT 2019
Sprenging hefur orðið í sölu orkudrykkja með miklu koffíni. Hvaða áhrif hefur aukin neysla á ungmenni? Matvælastofnun boðar til málþings um orkudrykki og ungt fólk þriðjudaginn 22. október kl. 10:00 - 15:30 á Grand Hótel Reykjavík.
Málþinginu verður streymt í beinni á Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook<https://www.facebook.com/neytendavakt/>.
Tilgangur málþingsins er ná saman sérfræðingum á sviði rannsókna, eftirlits og umsjónar barna og unglinga til að ræða aukna neyslu koffíns á Norðurlöndum, áhrif á ungt fólk og þær reglur sem gilda um markaðssetningu orkudrykkja. Það er opið almenningi og eru allir áhugasamir velkomnir.
* Dagskrá málþings<http://www.mast.is/library/Upplysingar/Energy-drinks-young-people-2019-programme.pdf>
Málþingið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni sem hluti af formennsku Íslands 2019 og fer fram á ensku. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfanginu mast at mast.is<mailto:mast at mast.is> með nafni, vinnustað og netfangi fyrir 17. október n.k. Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Með kveðju,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191011/a3227de7/attachment.html>
More information about the Gerlanet
mailing list