[ÖRFÍ]Bein útsending frá fundi um eftirlitskerfi Matvælastofnunar

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Thu Mar 16 11:38:07 GMT 2017


Matvælastofnun minnir á opinn fund um eftirlitskerfi stofnunarinnar á morgun, föstudaginn 17. mars, kl. 9-12 hjá Markaðsstofu Matvælastofnunar að Stórhöfða 23 í Reykjavík. Fundurinn verður sendur út í beinni útsendingu á vef Matvælastofnunar undir Útgáfa - Fræðslufundir<http://mast.is/default.aspx?PageID=6bb9e8dd-e22d-4073-8f08-10f7f797329b> og upptaka birt þar að fundi loknum.

Fundurinn er öllum opinn en er sérstaklega ætlaður matvælaframleiðendum sem stofnunin hefur eftirlit með, bændum sem og fyrirtækjum, til að fara yfir framkvæmd eftirlits, eftirfylgni og birtingu niðurstaðna úr eftirliti. Á fundinum verður jafnframt fjallað um uppbyggingu og nýlegar breytingar á skoðunarhandbókum Matvælastofnunar og áhættuflokkun fyrirtækja. Farið verður yfir forsendur og framkvæmd eftirlits og frammistöðuflokkun Matvælastofnunar á fyrirtækjum út frá niðurstöðum eftirlits. Verklag stofnunarinnar við beitingu þvingunar- og refsiúrræða verður kynnt, ásamt upplýsingagjöf út á við um niðurstöður eftirlits og aðgerðir Matvælastofnunar.

Dagskrá

  *   09:00 - 10:00   Skoðunarhandbækur Matvælastofnunar - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
  *   10:00 - 10:25   Áhættuflokkun fyrirtækja - Jónína Stefánsdóttir, MAST
  *   10:25 - 10:40   Hlé
  *   10:40 - 10:55   Frammistöðumat á fyrirtækjum - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
  *   10:55 - 11:40   Eftirfylgni og beiting þvingunar- og refsiúrræða - Ástfríður Sigurðardóttir, MAST
  *   11:40 - 12:00   Birting á niðurstöðum eftirlits - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST

Fundargestum gefst kostur á að koma spurningum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum. Þátttakendur þurfa ekki að skrá sig og er þátttakan þeim að kostnaðarlausu.

Gengið er inn í húsnæði Markaðsstofu að norðanverðu (Grafarvogsmegin).

Ítarefni

  *   Fræðslufundir Matvælastofnunar<http://mast.is/default.aspx?PageID=6bb9e8dd-e22d-4073-8f08-10f7f797329b>


Með kveðju,
Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________
[cid:image001.jpg at 01D138EE.6011DB90]
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170316/943abe67/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.jpg
Type: image/jpeg
Size: 3529 bytes
Desc: image001.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170316/943abe67/attachment.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list