[ÖRFÍ]Matvælastofnun minnir á opinn fund um eftirlitskerfi stofnunarinnar
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Mon Mar 13 10:41:26 GMT 2017
Matvælastofnun minnir á opinn fund um eftirlitskerfi stofnunarinnar á morgun á Akureyri og á föstudag í Reykjavík. Vinsamlega dreifið innan ykkar fyrirtækis/samtaka...
Matvælastofnun heldur fund um eftirlitskerfi stofnunarinnar kl. 9-12 þriðjudaginn 14. mars á Akureyri og föstudaginn 17. mars í Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn en er sérstaklega ætlaður matvælaframleiðendum sem stofnunin hefur eftirlit með, bændum sem og fyrirtækjum, til að fara yfir framkvæmd eftirlits, eftirfylgni og birtingu niðurstaðna úr eftirliti.
Á fundinum verður fjallað um uppbyggingu og nýlegar breytingar á skoðunarhandbókum Matvælastofnunar og áhættuflokkun fyrirtækja. Farið verður yfir forsendur og framkvæmd eftirlits og frammistöðuflokkun Matvælastofnunar á fyrirtækjum út frá niðurstöðum eftirlits. Verklag stofnunarinnar við beitingu þvingunar- og refsiúrræða verður kynnt, ásamt upplýsingagjöf út á við um niðurstöður eftirlits og aðgerðir Matvælastofnunar.
Dagskrá
* 09:00 - 10:00 Skoðunarhandbækur Matvælastofnunar - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
* 10:00 - 10:25 Áhættuflokkun fyrirtækja - Jónína Stefánsdóttir, MAST
* 10:25 - 10:40 Hlé
* 10:40 - 10:55 Frammistöðumat á fyrirtækjum - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
* 10:55 - 11:40 Eftirfylgni og beiting þvingunar- og refsiúrræða - Ástfríður Sigurðardóttir, MAST
* 11:40 - 12:00 Birting á niðurstöðum eftirlits - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
Fundargestum gefst kostur á að koma spurningum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum. Þátttakendur þurfa ekki að skrá sig og er þátttakan þeim að kostnaðarlausu.
Fundurinn á Akureyri er þriðjudaginn 14. mars kl. 9:00 - 12:00 hjá Hótel KEA að Hafnarstræti 87-89. Fundurinn í Reykjavík er föstudaginn 17. mars kl. 9:00 - 12:00 hjá Markaðsstofu Matvælastofnunar að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að norðanverðu (Grafarvogsmegin).
Með kveðju,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________
[cid:image001.jpg at 01D138EE.6011DB90]
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170313/9f3f332d/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image002.jpg
Type: image/jpeg
Size: 3529 bytes
Desc: image002.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170313/9f3f332d/attachment.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list