[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Mæði-visnuveira og HIV: Margt er líkt með skyldum
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Mon Mar 20 14:34:32 GMT 2017
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
*
*
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum*
Fyrirlesarar:*Valgerður Andrésdóttir *og*Stefán Ragnar
Jónsson*,**sérfræðingar á Keldum
**
Heiti erindis:*Mæði-visnuveiraog HIV: Margt er líkt með skyldum.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 23. mars kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Mæði-visnuveira og HIV eru retróveirur af flokki lentiveira og eru
náskyldar. Mæði-visnuveira hefur því verið rannsökuð sem módel fyrir HIV.
Allar retróveirur innlima erfðaefni sitt í litninga hýsilsins með hjálp
veirupróteinsins integrase, og er þessi innlimun eitt af lyfjamörkum
fyrir HIV. Það hefur hins vegar reynst erfitt að greina nákvæmlega
innlimunarflóka HIV, og hefur þurft að setja stökkbreytingar í integrase
ensímið til þess að gera það greiningarhæft. Með því að nota
frysti-rafeindasjá (cryo-electron microscopy) tókst að greina gerð
óstökkbreytts innlimunarflóka mæði-visnuveiru mjög nákvæmlega og var
hann borinn saman við sambærilega rannsókn í HIV þar sem HIV integrasi
var stökkbreyttur til að gera próteinið leysanlegra og virkara.
Flókarnir voru að mestu eins, en þó vantaði í HIV flókann atriði sem
mæði-visnuveiru flókinn gaf upplýsingar um. Þessar upplýsingar gætu nýst
við hönnun sameinda sem hindra innlimun HIV.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170320/44cb19af/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170320/44cb19af/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list