[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Umritunarstjórnun á mismunandi fjölhæfniástandi í fósturþroska músa
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Mon Mar 13 08:53:16 GMT 2017
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
**
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Erna Magnúsdóttir, *dósent í lífeinda- og líffærafræði við
Læknadeild HÍ..**
**
Heiti erindis:*Umritunarstjórnun á mismunandi fjölhæfniástandi í
fósturþroska músa.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 16. mars kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Í fósturþroska er mjög nákvæm stjórn á frumusérhæfingu. Á undanförnum
árum hefur komið í ljós að í fósturþroska músa er ákveðin framrás í eðli
fjölhæfnisástands frá innri frumumassa kímblöðru fyrir hreiðrun til
kímþekju eftir hreiðrun og svo við sérhæfingu frumkímfruma sem eru
forverar kynfruma. Þessari framrás má líkja eftir í frumuræktarkerfum
með stofnfrumum úr fósturvísum.
Í fyrirlestrinum mun Erna fjalla um nýtt verkefni í rannsóknarhóp hennar
sem snýr að umritunarþáttum sem eru tjáðir í kímlínu músa og hvernig
þeir taka þátt í sérhæfingu frumkímfruma og hafa áhrif á flæði fruma á
milli mismunandi fjölhæfnisástanda.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170313/a5d36129/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170313/a5d36129/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list