[ÖRFÍ]Opinn fundur um eftirlitskerfi Matvælastofnunar

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Mon Mar 6 11:46:49 GMT 2017


Vinsamlega dreifið innan ykkar fyrirtækis/samtaka...

Matvælastofnun heldur fund um eftirlitskerfi stofnunarinnar kl. 9-12 þriðjudaginn 14. mars á Akureyri og föstudaginn 17. mars í Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn en er sérstaklega ætlaður matvælaframleiðendum sem stofnunin hefur eftirlit með, bændum sem og fyrirtækjum, til að fara yfir framkvæmd eftirlits, eftirfylgni og birtingu niðurstaðna úr eftirliti.

Á fundinum verður fjallað um uppbyggingu og nýlegar breytingar á skoðunarhandbókum Matvælastofnunar og áhættuflokkun fyrirtækja. Farið verður yfir forsendur og framkvæmd eftirlits og frammistöðuflokkun Matvælastofnunar á fyrirtækjum út frá niðurstöðum eftirlits. Verklag stofnunarinnar við beitingu þvingunar- og refsiúrræða verður kynnt, ásamt upplýsingagjöf út á við um niðurstöður eftirlits og aðgerðir Matvælastofnunar.

Dagskrá


  *   09:00 - 10:00    Skoðunarhandbækur Matvælastofnunar - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
  *   10:00 - 10:25    Áhættuflokkun fyrirtækja - Jónína Stefánsdóttir, MAST
  *   10:25 - 10:40    Hlé
  *   10:40 - 10:55    Frammistöðumat á fyrirtækjum - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST
  *   10:55 - 11:40    Eftirfylgni og beiting þvingunar- og refsiúrræða - Ástfríður Sigurðardóttir, MAST
  *   11:40 - 12:00    Birting á niðurstöðum eftirlits - Jón Ágúst Gunnlaugsson, MAST

Fundargestum gefst kostur á að koma spurningum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum. Þátttakendur þurfa ekki að skrá sig og er þátttakan þeim að kostnaðarlausu.

Fundurinn á Akureyri er þriðjudaginn 14. mars kl. 9:00 - 12:00 hjá Hótel KEA að Hafnarstræti 87-89. Fundurinn í Reykjavík er föstudaginn 17. mars kl. 9:00 - 12:00 hjá Markaðsstofu Matvælastofnunar að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að norðanverðu (Grafarvogsmegin).


Með kveðju,
Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________
[cid:image001.jpg at 01D138EE.6011DB90]
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170306/5ec977e4/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image003.jpg
Type: image/jpeg
Size: 5749 bytes
Desc: image003.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170306/5ec977e4/attachment.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list