[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Sporð- og uggarotsbakteríur í íslensku fiskeldi.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Mon Feb 22 13:04:01 GMT 2016



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Sigríður Hjartardóttir, *líffræðingur á Keldum.**

**

Heiti erindis:***Sporð- og uggarotsbakteríur í íslensku fiskeldi.***

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 25. febrúar kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Vegna aukningar á tíðni sjúkdóma af völdum sporð- og uggarotsbaktería í 
fiskeldi á Íslandi var sótt um styrk til AVS rannsóknasjóðs í 
sjávarútvegi til þess að hægt væri að kanna eðli vandans. Síðastliðin 
tvö ár hafa miðað að því að leita að sjúkdómsvöldum á eldisbæjum, 
einangra þá með ræktun og greina til tegunda auk þess sem leitað hefur 
verið hugsanlegra smitleiða. Nokkrar áhugaverðar niðurstöður liggja nú 
þegar fyrir og verða þær kynntar í erindinu.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160222/4fcb9fc9/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160222/4fcb9fc9/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list