[ÖRFÍ]Málþing: Nýjar reglur um velferð gæludýra
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Sun Feb 28 01:22:50 GMT 2016
Matvælastofnun minnir á málþing um nýjar reglur um velferð gæludýra nk. fimmtudag kl. 13-16. Skráning er til og með næsta þriðjudags.
Stefnt er að því að halda sama málþing á Akureyri um miðjan mars mánuð. Málþingið á Akureyri verður auglýst síðar.
From: Hjalti Andrason
Sent: 24. febrúar 2016 09:09
To: Hjalti Andrason <hjalti.andrason at mast.is>
Subject: Málþing: Nýjar reglur um velferð gæludýra
Til dreifingar
Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn, 3. mars kl. 13:00 - 16:00 í fyrirlestrarsal ráðuneytisins að Skúlagötu 4 (1.h.) í Reykjavík. Á málþinginu gefst gæludýraeigendum og öðrum áhugasömum kostur á að fræðast um kröfur og helstu nýmæli nýrrar reglugerðar um velferð gæludýra, með gagnvirkum umræðum í lokin.
Með útgáfu reglugerðarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lokið útfærslu á nýjum dýravelferðarlögum fyrir allar helstu dýrategundir sem löggjöfin nær yfir. Matvælastofnun fer með framkvæmd laganna og reglugerða um velferð dýra og hefur eftirlit með að ákvæðum þeirra sé fylgt.
Dagskrá
· 13:00 - 13:10 Ný reglugerð um velferð gæludýra - Halldór Runólfsson, fundarstjóri
· 13:10 - 13:20 Af hverju nýjar reglur og hver fylgist með? - Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir
· 13:20 - 14:30 Meðferð, umhirða og aðbúnaður gæludýra - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
· 14:30 - 14:45 Hlé
· 14:45 - 15:15 Tilkynningarskylt dýrahald - hvað er það? - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
· 15:15 - 15:55 Umræður
· 15:55 - 16:00 Samantekt og lokaorð - Halldór Runólfsson, fundarstjóri
Skráning
Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir! Skráning fer fram á netfanginu mast at mast.is<mailto:mast at mast.is>. Vinsamlega takið fram fullt nafn, fyrirtæki/samtök og netfang þátttakanda við skráningu. Skráningarfrestur er til 1. mars nk.
Nánari upplýsingar um reglugerðina er að finna hér:
http://www.mast.is/frettaflokkar/frett/2016/02/18/Nyjar-reglur-um-velferd-gaeludyra/
Með kveðju,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration
_____________________________________________________
[cid:image001.jpg at 01D138EE.6011DB90]
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160228/60613dd6/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image002.jpg
Type: image/jpeg
Size: 4108 bytes
Desc: image002.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160228/60613dd6/attachment.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list