[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Gulrófur og garðar á gamalli tíð.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Mon Feb 15 13:23:23 GMT 2016



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.

*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:***Jónatan Hermannsson*, lektor við Auðlindadeild 
Landbúnaðarháskóla Íslands.

**

Heiti erindis:***Gulrófur og garðar á gamalli tíð.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 18. febrúar kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Einhvers konar garðrækt hefur verið stunduð hér á landi allt frá upphafi 
Íslandsbyggðar. Næpur og gulrófur hafa gegnt þar lykilhlutverki. 
Gulrófan þó ekki nema síðari hluta tímabilsins því svo virðist sem hún 
hafi ekki orðið til fyrr en á sextándu öld. Blómaskeið íslenskrar 
garðræktar var á nítjándu öld og fram eftir þeirri tuttugustu. Gulrófan 
var þar í heiðurssæti lengi vel en hefur fyrir löngu vikið úr því sæti 
fyrir kartöflunni. Garðyrkja þótti verðugt viðfangsefni heldra fóks á 
þeim tímum og fyrirmannlegustu embættismenn þjóðarinnar stofnuðu 
Garðyrkjufélag Íslands. Í erindinu verður horft á garðrækt í sögulegu 
ljósi og raktir ýmsir þræðir í ættarsögu gulrófunnar og fjallað um 
vandamál við að halda árunni hreinni á svo lauslátri plöntu.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160215/72fc3e37/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160215/72fc3e37/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list