[ÖRFÍ][Heldrikeldur] Fræðsluerindi á Keldum: Staða rannsókna á kregðu í íslensku sauðfé.
"Sigurður Sigurðsson"
sigsig at hi.is
Wed Apr 29 06:45:26 GMT 2015
Ég missti af þessu erindi um áhugavert efni vegna ferðar til útlanda. Tjón
er mikið af þessum sjúkdómi í lömbum og ungu fé, meira en menn hafa áttað
sig á. Þökk fyrir að setja kraft í rannsóknir á kregðunni. Það var
sannarlegsa tími til kominn. Hlakka til að kynna mér efni erindisins og
fylgjast með hvernig gengur. Er hægt að ná í upplýsingar umfyrirlesturinn
á netinu?
Bestu kveðjur,
Sigurður Sigurðarson dýralæknir
>
>
> _Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
> hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
> Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
> til ykkar fólks._
>
> *
> *
>
> *Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
>
> Fyrirlesari:*Sigríður Hjartardóttir, *líffræðingur á Keldum.**
>
> **
>
> Heiti erindis:***Staða rannsókna á kregðu í íslensku sauðfé**.*
>
> **
>
> Erindið verður haldið _fimmtudaginn 30. apríl kl. 12:20_, í bókasafni
> Tilraunastöðvarinnar.
>
> Kregða orsakast af /Mycoplasma ovipneumoniae/ bakteríunni og veldur
> lungnasjúkdómi í sauðfé og geitum. Sjúkdómurinn einkennist af hósta,
> andnauð og mæði og herjar aðallega á ung dýr. Síðla hausts árið 2013 var
> sett á laggirnar rannsókn á lungnasjúkdómum í sauðfé að Tilraunastöð HÍ
> í meinafræði að Keldum. Í samstarfi við MAST voru tekin sýni úr
> sauðfjárlungum með einkenni kregðu víðsvegar að af landinu og lagt mat á
> tíðni og útbreiðslu sjúkdómsins. Á opnum fyrirlestri fimmtudaginn 30.
> apríl mun verða farið yfir stöðu rannsókna á sjúkdómnum og hvers má
> vænta af áframhaldandi rannsóknum. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:20 og er
> hann haldinn á bókasafninu á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
>
> _______________________________________________________________
>
> Birkir Þór Bragason
>
> Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
>
> _______________________________________________
> Heldrikeldur mailing list
> Heldrikeldur at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/heldrikeldur
>
More information about the Gerlanet
mailing list