Faraldur smitandi hósta gekk yfir hrossastofninn
árið 2010. Þrátt fyrir að um tiltölulega vægan sjúkdóm væri að ræða hafði
hann lamandi áhrif á hestamennskuna í landinu og alla atvinnustarfsemi
henni tengdri. Matvælastofnun, Tilraunastöðin á Keldum og Dýralæknafélag
Íslands boða til málþings um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum
föstudaginn 17. apríl kl. 10:30 – 17:00 í sal Íslenskrar erfðagreiningar
að Sturlugötu 8 í Reykjavík. Dagskrá málþings er að finna á íslensku og
ensku í viðhengjum.

Langan tíma tók að greina orsök sjúkdómsins,
m.a. vegna þess að þekkingu skorti á stofnabreytileika hinnar annars vel
þekktu bakteríu Streptococcus zooepidemicus, sem fyrst og fremst
var talin fylgja í kjölfar annarra sýkinga. Með sameindalíffræðilegum aðferðum
og tengingu þeirra við faraldsfræðileg gögn auk þess sem veirusýkingar
voru útilokaðar, var sýnt fram á að nýr stofn S. zoo. auðkenndur
ST209, hafði borist til landsins og valdið faraldrinum.  Stofninn
reyndist ekki mjög sjúkdómsvaldandi þar sem hann er ekki með svokölluð
„superantigen“, en ríkulega búinn hæfileikum til að klístra sig við slímhúð
(pilus) og valda langvarandi hósta. Kom það heim og saman við sjúkdómsmyndina.

Margan lærdóm má draga af faraldri smitandi
hósta árið 2010 en til að svo megi verða þarf að kynna ítarlega þær aðferðir
sem leiddu til niðurstöðu um orsakir sjúkdómsins.

Mikilvægast er að við gerum okkur grein
fyrir að margir fleiri stofnar bakteríunnar – og mun meira sjúkdómsvaldandi
– gætu borist með sama hætti til landsins. Ber þar einkum að líta til
Streptococcus equi sem er sérhæfður sjúkdómsvaldur hjá hrossum og veldur
kverkeitlabólgu.  Sértæk viðbragðsáætlun vegna kverkeitlabólgu verður
kynnt á málþinginu.

Aðalfyrirlesarar málþingsins gegndu
lykilhlutverki við greiningu sjúkdómsins og eru leiðandi í rannsóknum á
þessu sviði á heimsvísu:

Andrew Waller,  Centre for Preventive
Medicine,  Animal Health Trust, Newmarket

Richard Newton, Centre for Preventive
Medicine,  Animal Health Trust, Newmarket

Málþingið er öllum opið og aðgangur
er ókeypis. Fyrirlestrar og umræður fara fram á ensku.

Hægt er að skrá sig í hádegisverð í
Norræna húsinu á netfangið skraning@mast.is fyrir 14. apríl. Hádegisverðurinn
kostar 3400 kr.

Með kveðju,

Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication

Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration

Matvælastofnun / Icelandic Food
And Veterinary Authority

Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland

Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 – www.mast.is