[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Tvö andlit erfðafjölbreytileikans – kynbætur og rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Birkir Þór Bragason
birkirbr at hi.is
Mon Nov 5 09:27:29 GMT 2012
_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks. _
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari: *Jón Hallsteinn Hallsson* lektor, Landbúnaðarháskóla Íslands.
Heiti erindis: *Tvö andlit erfðafjölbreytileikans – kynbætur og
rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands.*
Erindið verður haldið_fimmtudaginn 8. nóvember_, kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Í kynbótum nytjaplantna og –dýra er leitast við að hámarka uppskeru og
afköst á hverjum tíma með því að velja „bestu“ einstaklingana til
undaneldis. Slíkt val eykur jafnan einsleitni stofna og gengur á
erfðafjölbreytileika. Þetta er afar slæmt þar sem erfðafjölbreytileiki
gegnir lykilhlutverki í viðbrögðum stofna við breyttum
umhverfisaðstæðum. Þannig vega kynbætur nytjastofna salt á milli
langtíma og skammtíma hugsunar, á milli þess að hámarka uppskeru og
lágmarka tap á breytileika sem seinna gæti reynst dýrmætur.
En erfðafjölbreytileikinn er ekki aðeins besti vinur kynbótamannsins
heldur getur hann á augabragði snúist upp í andhverfu sína. Þetta sést
einna best í því eilífa vopnakapphlaupi sem ríkir milli plantna og
fjölmargra stofna sjúkdómsvalda sem á þær herja. Þegar stofnar
sjúkdómsvaldandi örvera breytast að samsetningu og brjóta niður varnir
nytjastofna er voðinn vís ef ekki er brugðist við af festu.
Íslenskur landbúnaður hefur notið góðs af því undanfarin ár að veðurfar
hefur batnað mikið, sem sést m.a. á góðum árangri í byggrækt víða um
land. En Ísland er ekki undanþegið plöntusjúkdómum, þó svo að fjarlægð
frá meginlöndum veiti ákveðna vernd, og bættum ræktunarskilyrðum og
aukinni ræktun fylgja auknar líkur þess að nýjir sjúkdómar og nýjar
sýkingartýpur nemi hér land og geri óskunda.
Í fyrirlestrinum verður fjallað stuttlega um hitt og þetta sem viðkemur
landbúnaði, plöntusjúkdómum og erfðafjölbreytileika.
________________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20121105/b7f8b977/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20121105/b7f8b977/attachment-0001.jpg
More information about the Gerlanet
mailing list