<html>
<head>
<meta content="text/html; charset=windows-1252"
http-equiv="Content-Type">
</head>
<body text="#000000" bgcolor="#FFFFFF">
<img alt="" src="cid:part1.00090704.09090502@hi.is" width="709"
height="82"><br>
<br>
<font color="#ff6600"><u>Þessi póstur er sendur tengiliðum við
stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa, til að kynna fræðsluerindi
sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum. Vinsamlegast
áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks. </u></font><br>
<br>
<br>
<br>
<font face="Times New Roman"><b>Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla
Íslands í meinafræði að Keldum.</b><br>
<br>
Fyrirlesari: <b>Jón Hallsteinn Hallsson</b> lektor,
Landbúnaðarháskóla Íslands. <br>
Heiti erindis: <b>Tvö andlit erfðafjölbreytileikans – kynbætur
og rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands.</b><br>
<br>
Erindið verður haldið<u> fimmtudaginn 8. nóvember</u>, kl. 12:20,
í bókasafni Tilraunastöðvarinnar. <br>
<br>
Í kynbótum nytjaplantna og –dýra er leitast við að hámarka
uppskeru og afköst á hverjum tíma með því að velja „bestu“
einstaklingana til undaneldis. Slíkt val eykur jafnan einsleitni
stofna og gengur á erfðafjölbreytileika. Þetta er afar slæmt þar
sem erfðafjölbreytileiki gegnir lykilhlutverki í viðbrögðum stofna
við breyttum umhverfisaðstæðum. Þannig vega kynbætur nytjastofna
salt á milli langtíma og skammtíma hugsunar, á milli þess að
hámarka uppskeru og lágmarka tap á breytileika sem seinna gæti
reynst dýrmætur. <br>
<br>
En erfðafjölbreytileikinn er ekki aðeins besti vinur
kynbótamannsins heldur getur hann á augabragði snúist upp í
andhverfu sína. Þetta sést einna best í því eilífa vopnakapphlaupi
sem ríkir milli plantna og fjölmargra stofna sjúkdómsvalda sem á
þær herja. Þegar stofnar sjúkdómsvaldandi örvera breytast að
samsetningu og brjóta niður varnir nytjastofna er voðinn vís ef
ekki er brugðist við af festu.<br>
<br>
Íslenskur landbúnaður hefur notið góðs af því undanfarin ár að
veðurfar hefur batnað mikið, sem sést m.a. á góðum árangri í
byggrækt víða um land. En Ísland er ekki undanþegið
plöntusjúkdómum, þó svo að fjarlægð frá meginlöndum veiti ákveðna
vernd, og bættum ræktunarskilyrðum og aukinni ræktun fylgja auknar
líkur þess að nýjir sjúkdómar og nýjar sýkingartýpur nemi hér land
og geri óskunda.<br>
<br>
Í fyrirlestrinum verður fjallað stuttlega um hitt og þetta sem
viðkemur landbúnaði, plöntusjúkdómum og erfðafjölbreytileika.<br>
<br>
________________________________________________________________<br>
<br>
Birkir Þór Bragason<br>
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum<br>
</font>
<div class="moz-text-html" lang="x-western">
<link rel="File-List"
href="file:///C:%5CDOCUME%7E1%5CBIRKIR%7E1%5CLOCALS%7E1%5CTemp%5Cmsohtml1%5C01%5Cclip_filelist.xml">
</div>
<br>
<br>
</body>
</html>