[ÖRFÍ]Vísindadagur á Keldum föstudaginn 30. mars 2012
Guðbjörg Jónsdóttir
gj at hi.is
Wed Mar 21 12:04:55 GMT 2012
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Vísindadagur á Keldum föstudaginn 30. mars 2012.
Föstudaginn 30. mars verður Vísindadagur á Keldum. Vísindadagurinn er eins
dags ráðstefna og er nú haldin í fimmta sinn.
Starfsmenn Tilraunastöðvarinnar og nemendur í rannsóknanámi verða með
fyrirlestra um ýmis verkefni í príon-, veiru, bakteríu-, sníkjudýra-,
sameinda- og ónæmisfræðum. Auk þess verður veggspjaldasýning en þar verða
kynnt fjölbreytileg verkefni á sömu fræðasviðum. Fyrirlesararnir, sem skýra
frá rannsóknaniðurstöðum og túlka þær, eru margir hverjir með áratuga
reynslu af vísindastarfi. Auk þess eru yngri vísindamenn, s.s. nemendur í
rannsóknanámi, með kynningu á verkefnum sínum.
Ráðstefnan hefst stundvíslega kl. 8:30 í bókasafni Keldna með setningu
rektors Háskóla Íslands, Kristínar Ingólfsdóttur. Ráðstefnan stendur til kl.
17.00.
Nánari upplýsingar um dagskrá verður hægt að nálgast á heimasíðu Keldna
(www.keldur.is).
Frekari upplýsingar má fá í síma 5855100 hjá þeim er starfa að undirbúningi
ráðstefnunnar, þeim Guðbjörgu Jónsdóttur, Ívari Erni Árnasyni og Sigríði
Jónsdóttur.
Bestu kveðjur,
Vísindadagsnefnd Keldna 2012
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120321/0737a69c/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120321/0737a69c/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list