[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum. Halldór Þormar. Visnu og mæðirannsóknir á Keldum fyrir hálfri öld.

Sigurður H. Richter shr at hi.is
Mon Mar 12 11:56:04 GMT 2012



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.

 

Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

 

Fyrirlesari: Halldór Þormar, prófessor emeritus.

Heiti erindis:  Visnu og mæðirannsóknir á Keldum fyrir hálfri öld.

 

Erindið verður haldið fimmtudaginn 15. mars, kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar. 

 

Visna og mæði eru smitsjúkdómar í sauðfé sem bárust til Íslands árið 1933
með innfluttu karakúlfé. Mæði er lungnasjúkdómur og visna sjúkdómur í
miðtaugakerfi og teljast til hæggengra sýkinga. Sýkingartilraunir í kindum
bentu til að visna og mæði væru veirusjúkdómar. Visnuveiran ræktaðist í
frumurækt árið 1957 og mæðiveiran árið 1958. Báðar veirur ollu svipuðum
sjúklegum breytingum í frumurækt og skoðun í rafeindasmásjá leiddi í ljós
svipaðar kúlulaga veiruagnir. Frekari rannsóknir sýndu að um náskyldar eða
sömu veiru var að ræða sem síðar var nefnd mæði-visnuveira (MVV). Rannsóknir
bentu til að MVV væri náskyld RNA æxlisveirum og sú tilgáta sannaðist við
uppgötvun víxlritans (reverse transcriptase) sem skipaði þessum veirum í
flokk retroveira. MVV telst til undirflokks lentiveira ásamt HIV.

 

_______________________________________________________________

 

Sigurður H. Richter

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

Sími 896 5811

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120312/620a5c20/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120312/620a5c20/attachment.jpe 


More information about the Gerlanet mailing list