[ÖRFÍ]Vísindadagur á Keldum föstudaginn 30. mars 2012
Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir
totarafnar at gmail.com
Thu Mar 29 15:40:29 GMT 2012
**
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.****
** **
*
**Vísindadagur á Keldum föstudaginn 30. mars 2012.*
** **
*Á morgun, föstudaginn 30. mars** *verður Vísindadagur á Keldum.
Vísindadagurinn er eins dags ráðstefna og er nú haldin í fimmta sinn.****
Starfsmenn Tilraunastöðvarinnar og nemendur í rannsóknanámi verða með
fyrirlestra um ýmis verkefni í príon-, veiru, bakteríu-, sníkjudýra-,
sameinda- og ónæmisfræðum. Auk þess verður veggspjaldasýning en þar verða
kynnt fjölbreytileg verkefni á sömu fræðasviðum. Fyrirlesararnir, sem skýra
frá rannsóknaniðurstöðum og túlka þær, eru margir hverjir með áratuga
reynslu af vísindastarfi. Auk þess eru yngri vísindamenn, s.s. nemendur í
rannsóknanámi, með kynningu á verkefnum sínum.****
**Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin. **
Ráðstefnan hefst stundvíslega kl. 8:30 í bókasafni Keldna með setningu
rektors Háskóla Íslands, Kristínar Ingólfsdóttur. Ráðstefnan stendur til
kl. 17.00.
Nánari upplýsingar um dagskrá verður hægt að nálgast á heimasíðu Keldna (
www.keldur.is).**
* *
Frekari upplýsingar má fá í síma 5855100 hjá þeim er starfa að undirbúningi
ráðstefnunnar, þeim Guðbjörgu Jónsdóttur, Ívari Erni Árnasyni og Sigríði
Jónsdóttur.****
** **
Bestu kveðjur,****
Vísindadagsnefnd Keldna 2012****
** **
** **
** **
** **
** **
_______________________________________________
Gerlanet mailing list
Gerlanet at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gerlanet
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120329/f906a2fb/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20120329/f906a2fb/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list