[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum. Bergljót Magnadóttir. Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 2011.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Tue Oct 25 10:50:30 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fyrirlesari: Bergljót Magnadóttir dýrafræðingur.
Heiti erindis: Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 2011.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 27 október, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Sagt verður frá Nóbelsverðlaunahöfum í lífeðlis- og læknisfræði 2011 og
rannsóknum þeirra. Verðlaunin skiptust á milli þriggja vísindamanna sem hafa
umbreytt skilningi manna á ónæmiskerfinu og samspili meðfædda og áunna
ónæmiskerfisins. Verðlaunin hlutu annars vegar Bruce A. Beutler við Texas
háskóla og Jules A. Hoffmann við CNRS rannsóknarstofnunina í Strasbourg
fyrir rannsóknir á toll-viðtökum og hins vegar Ralph M. Steinman við
Rockefeller háskólann í New York fyrir rannsóknir á angafrumum.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111025/4608c62e/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111025/4608c62e/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list