[ÖRFÍ]Fræðslufundur á Keldum. Lára G. Sigurðardóttir . Konur - lífsstíll - krabbamein.
Sigurður H. Richter
shr at hi.is
Mon Oct 17 11:30:24 GMT 2011
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa,
til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum.
Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar
fólks.
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fyrirlesari: Lára G. Sigurðardóttir læknir hjá Krabbameinsfélaginu.
Heiti erindis: Konur lífsstíll krabbamein.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 20 október, kl. 12:20 í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Meginmarkmið Krabbameinsfélagsins er að styðja og efla í hvívetna baráttu
gegn krabbameinum. Starfsemi félagsisn er fjölþætt en í fyrirlestrinum eru
þrjár helstu deildir kynntar: Leitarstöð, Krabbameinsskrá og
Ráðgjafarþjónusta.
Rætt er um algengustu krabbamein hjá konum og helstu einkenni þeirra. Rekja
má talsverðan hluta af krabbameinum til óheilbrigðs lífernis og farið verður
yfir þá lifnaðarhætti sem vísindarannsóknir hafa fundið tengsl við. Að lokum
farið yfir hvernig er hægt að breyta um lífstíl.
________________________________________________________________
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
Símar 585 5100 og 896 5811
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111017/10ac72e1/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 7619 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20111017/10ac72e1/attachment.jpe
More information about the Gerlanet
mailing list