[Gerlanet] Örverufræðifélag Íslands 20 ára

Þórunn Þorsteinsdóttir thoruth at hi.is
Mon May 5 14:12:12 GMT 2008



Örverufræðifræðifélag Íslands fagnar nú 20 ára afmæli sínu og af því tilefni
verðu hið árlega vorþing með öllu stærra sniði þetta árið.

Þann 27. maí 2008 kl 13:00-16:30 verður haldin ráðstefna á Háskólatorgi undir
yfirskriftinni "Örverufræðirannsóknir á Íslandi". Haldin verða yfirlitserindi
yfir örverufræðirannsóknir á Íslandi síðustu áratugina þar sem farið verður
vítt og breytt yfir svið örverufræðinnar.
Fyrir utan ráðstefnusalinn verður svo veggspjaldasýning sem fundargestir geta
skoðað í kaffihléi og í móttöku eftir ráðstefnuna.

Við óskum hér með eftir sem flestum veggspjöldum og útdráttum, svo hægt sé að
fá greinagóða mynd af þeim örverurannsóknum sem stundaðar eru hér á landi.
Þeir sem ætla að kynna veggspjöld eru vinsamlegast beðnir um að senda
upplýsingar um titil, höfund(a) og nafn stofnunar (stofnanna) og útdrátt til
ritstjóra fréttabréfs ÖRFÍ (thoruth at hi.is) fyrir 15. maí n.k.

Með kveðju
Stjórn ÖRFÍ






More information about the Gerlanet mailing list