[Gerlanet] Fyrirlestrardagur PUFFIN 8. maí 2008

Þórunn Þorsteinsdóttir thoruth at hi.is
Mon May 5 13:58:45 GMT 2008


Matís ásamt Örverufræðifélagi Íslands og erlendum fagaðilum á sviði hreinlætis
og gæðamála við matvælavinnslu standa fyrir fyrirlestrardegi 8. maí
næstkomandi. Erindin verða haldin í húsakynnum Matís, Skúlagötu 4 á jarðhæð.

Markmið fundarins er að kynna verkefnið Puffin (Pathogen & ugly microbe free
food industry network) sem styrkt er af Evrópusambandinu og um leið að fjalla
um hreinlæti, loftræstingu og vinnsluyfirborð í matvælavinnslum.

Nánari upplýsingar um fyrirlestrardaginn og Puffin verkefnið má finna á
heimasíðu verkefnisins (http://puffin.vtt.fi/index.htm).

Með kveðju,
Stjórn ÖRFÍ





More information about the Gerlanet mailing list