[Gerlanet] Örverufræðifélag Íslands 20 ára

Þórunn Þorsteinsdóttir thoruth at hi.is
Tue May 13 14:12:17 GMT 2008


Örverufræðifélag Íslands fagnar nú 20 ára afmæli sínu og af því tilefni verðu
hið árlega vorþing með öllu stærra sniði þetta árið.

Þann 27. maí 2008 kl 13:00-16:30 verður haldin ráðstefna á Háskólatorgi í sal
HT101 undir yfirskriftinni "Örverufræðirannsóknir á Íslandi". Haldin verða
yfirlitserindi yfir örverufræðirannsóknir á Íslandi síðustu áratugina þar sem
farið verður vítt og breytt yfir svið örverufræðinnar.

Dagskrá:

13:00-13:05	Opnun - Viggó Marteinsson formaður ÖRFÍ
13:05-13:50 	Umhverfisfræði – Jakob Kristinsson
13:50-14:35 	Matvælaörverufræði - Hélène L. Lauzon, Franklín Georgsson og
				Hannes Magnússon
14.35-15:00 	Kaffi - veggspjaldasýning
15:00-15:45 	Mannaörverufræði – Karl G. Kristinsson
15:45-16:30	Dýraörverufræði – Eggert Gunnarsson
16:30- 		Móttaka á Háskólatorgi



Fyrir utan ráðstefnusalinn verður svo veggspjaldasýning sem fundargestir geta
skoðað í kaffihléi og í móttöku eftir ráðstefnuna.

Við óskum hér með eftir sem flestum veggspjöldum, svo hægt sé að fá greinagóða
mynd af þeim örverurannsóknum sem stundaðar eru hér á landi. Þeir sem ætla að
kynna veggspjöld eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um titil,
höfund(a) og nafn stofnunar (stofnanna) og útdrátt til ritstjóra fréttabréfs
ÖRFÍ (thoruth at hi.is) fyrir 15. maí n.k.


Með kveðju
Stjórn ÖRFÍ





More information about the Gerlanet mailing list