[Gerlanet] Minnt á Listeriu... í dag
Viggó Þór Marteinsson
viggo.marteinsson at prokaria.com
Tue Mar 30 09:20:16 BST 2004
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Örverufræðifélag Íslands boða til
FRÆÐSLUFUNDAR
Í dag 30. mars 2004
Kl. 13:00-16:00 á Grand Hóel
Reykjavík
Listeria-dagur: Listeria í mönnum, dýrum og matvælum
Listeria monocytogenes er baktería sem finnst í mörgum
matvælategundum. Tíðni
hennar er sem betur fer lág en hún getur valdið alvarlegum
sýkingum í mönnum og dýrum.
Á fundinum á Grand Hótel verður fjallað um sýkingar af völdum
Listeria
monocytogenes og hvernig ástandið er í dag í matvælavinnslu með
tilliti til hennar.
Kynntar verða rannsóknir sem gerðar hafa verið á undanförnum
árum á
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins í tengslum við matvælaiðnað.
Farið verður yfir
hvernig best er að koma í veg fyrir að Listeria monocytogenes
berist inn í
matvælavinnslu og nái að festa sig þar í vinnsluumhverfinu.
Stofnagreiningum á
bakteríunni verður lýst, en þær eru notaðar til þess að rekja
uppruna og mengunarleiðir
í matvælavinnslu. Loks verður fjallað um náttúrulega rotvörn sem
er mögulegur
valkostur til að hindra vöxt Listeria í matvælum.
Fundarstjóri: Bjarnheiður Guðmundsdóttir, formaður
Örverufræðingafélags Íslands.
Þátttökugjald: 500 kr.
Dagskrá:
13.00-13.05 Fundarsetning - Bjarnheiður Guðmundsdóttir
13.05-13.30 Listeriosis - sýkingar í mönnum - Már Kristjánsson,
læknir
13.30-13.55 Listeria sýkingar í dýrum - Kristín Björg
Guðmundsdóttir, dýralæknir
13.55-14.20 Listeria í matvælavinnslu - Birna Guðbjörnsdóttir,
matvælafræðingur
14.20-14.50 Kaffihlé
14.50-15.15 Stofnagreininar á Listeria. Sigrún Guðmundsdóttir,
líffræðingur
15.15-15.40 Náttúruleg rotvörn. Hélène L. Lauzon,
matvælafræðingur
15.40-16.00 Umræður
16.00 Fundi slitið
Fyrir hönd Örverufræðifélagsins,
Viggó Þór Marteinsson, ritstjóri fréttabréfs
Viggó Thór Marteinsson, Ph.D.
Prokaria ltd.
Gylfaflöt 5
IS-112 Reykjavik, Iceland
Tel. +354-570-7924
Fax +354-570-7901
Email viggo at prokaria.com
www.prokaria.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20040330/2c33fe05/attachment.html
More information about the Gerlanet
mailing list