[Gandur] Kallað eftir erindum fyrir Landsbyggðarráðstefnuna 2020!

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Tue Jan 14 12:55:38 GMT 2020


Kallað eftir erindum fyrir Landsbyggðarráðstefnuna 2020!

Kallað er eftir erindum fyrir Landsbyggðarráðstefnuna 2020 sem haldin
verður á Egilsstöðum 15.-17. maí. Yfirskrift og þema ráðstefnunnar eru
Vegamót (nánari lýsing fyrir neðan). Áhugasamir eru beðnir að senda titil
og stutt ágrip (200-300 orð) á netfangið felagthjodfraedinga at gmail.com
fyrir 1. mars næstkomandi. Öllum er frjálst að senda inn erindi og endilega
hafið samband ef eru einhverjar spurningar. Félag þjóðfræðinga á Íslandi og
Minjasafn Austurlands standa að ráðstefnunni í samvinnu við fleiri aðila.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Þema ráðstefnunnar.
Yfirskriftin Vegamót vísar til þess að á landsbyggðarráðstefnunni mætist
fólk úr ólíkum áttum; fólk frá ólíkum landshornum, fólk úr ýmsum
fræðigreinum, nemar á ýmsum stigum í námi, áhuga- og fræðafólk. Þar mætast
líka ólík viðfangsefni, hugmyndir, aðferðir og nálganir, fortíð og nútíð og
hinir ýmsu krókar og kimar mannlífsins. Vegamót standa líka fyrir
hreyfanleika, ferðalög og breytingar. Þegar komið er að vegamótum er venjan
að staldra við, horfa í kringum sig, kanna ólíka möguleika og jafnvel líta
yfir farinn veg. Svo þarf að ákveða hvort breyta eigi um stefnu eða halda
áfram á sömu leið.

Yfirskriftin hefur svo einnig skemmtilega tilvísun til staðsetningar
ráðstefnunnar á Egilsstöðum en þeir hafa í gegnum tíðina verið nefndir
vegamót Austurlands.

<https://www.facebook.com/thjodfraedingar/photos/a.1080457152049043/2795571450537596/?type=3&eid=ARBNyS4H3gHi6FSkhZVran23cnXXL3V3fbHiK_yxn9YqQGxEd3ZUVkaJBohl-fX1jHydXF_hfSzY_0GE&__xts__%5B0%5D=68.ARA-E1xcnWU6Msqj9Y86iRirvGQ-sCf6FBeeuwvs-he1NRr2PyYyWTN3ZE_TkqPmGH9dpR6I_Ocb7WsFU-1bP4zgF9TDwTfoBkQqBvaXAuQoVbjuXWkOk05qJkzgz0hzBdycUIjTSDiSmVIaKEhdmKv1AQWskWyiSIKTlo1eLlOkBaMWs4oaXSUituKS9U4_DhBiHTyxn-rgp688ZLao2Zpw81Ys4edaIUWvbGCrJ-dsrkS1TJ2FZNKGNH5vC4u_9hUjh_2WfMJKk1SYlNMD8X9E09pEZXA8SsAGiFeZbREdwX98sLD32SFwUk_cxZx4CwIAvPlioAAqhq7-_4F-8ebnlw&__tn__=EHH-R>


More information about the Gandur mailing list