[Gandur] Sýning myndarinnar "Síðasti bærinn í dalnum."

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Sun Jan 12 23:32:37 GMT 2020


Síðasti bærinn í dalnum. Kvikmynd Óskars Gíslasonar eftir sögu Lofts Guðmundssonar frá 1950. Ein af fyrstu íslenskum kvikmyndum í fullri lengd. Óskar var einn af frumkvöðlum hérlendis í kvikmyndagerð. Sígilt ævintýri um baráttu góðs og ills.

Sögufélagið Steini stendur fyrir sýningu á þessari landsfrægu bíómynd í Fólkvangi á Kjalarnesi laugardaginn 18. janúar, kl. 16. Hluti myndarinnar var tekinn upp á Kjalarnesi. Núna hefur myndin verið endurunnin og bætt. Allir hvattir til að koma og sjá þessa skemmtilegu mynd og styrkja Sögufélagið Steina í leiðinni [https://static.xx.fbcdn.net/images/emoji.php/v9/t4c/1/16/1f642.png] :)

Frítt fyrir börn. Fyrir fullorðna (18 ára og eldri) 1000 kr. Fyrir hjón 1500 kr. Veitingar í hléi en þær eru innifaldar í aðgangseyri.

Fyrir hönd Sögufélagsins Steina á Kjalarnesi. Hrefna S. Bjartmarsdóttir.


More information about the Gandur mailing list