[Gandur] Þorrablót Þjóðbrókar og FÞÍ

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Thu Jan 30 22:02:25 GMT 2020


Nú styttist í *Þorrablót *Þjóðbrókar og Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Að
þessu sinni verður það haldið föstudagskvöldið* 14. febrúar* í Akóges
salnum, á 3. hæð í Lágmúla 4.

Húsið opnar 18:00 og borðhald hefst 19:00. Það verða margvísleg
skemmtiatriði, minni karla og kvenna, vikivaki, gleði og gaman!

Veisluþjónustan Soho mun sjá um veitingar og líkt og undanfarin ár verður
þorramatur í forrétt. Í aðalrétt verður svo hunangs og salvíu og lime
marineruð kalkúnabringa, kryddjurtamarinerað hægeldað lambalæri bérnaise og
innbökuð hnetusteik Wellington fyrir grænkera. Í eftirrétt verður frönsk
súkkulaði mousse terta með perum og vanillusósu.

Á staðnum er enginn bar svo gestum er frjálst að *hafa með sér eigin drykki*.


Miðaverð er 6500 kr. fyrir félaga í Þjóðbrók og Félagi þjóðfræðinga á
Íslandi og 7500 kr. fyrir aðra.

*Miðasalan* hefst á þriðjudaginn í næstu viku (4. febrúar) og verður hægt
að kaupa miða upp í Háskóla á milli kl. 10-15 þriðjudag til föstudags. Þau
sem ekki komast á svæðið til að kaupa geta haft samband í tölvupósti eða á
facebook þegar að miðasalan hefst í næstu viku :) Við hlökkum til að sjá
ykkur!

Kær kveðja,
F.h. Félags þjóðfræðinga, Dagrún Ósk


More information about the Gandur mailing list