[Gandur] Bókakynning: Á mörkum mennskunnar 11. sept. kl. 15 í Gimli 102

Sögusmiðjan sogusmidjan at strandir.is
Mon Sep 10 16:15:26 GMT 2018


Út er komin bókin /Á mörkum mennskunnar. Viðhorf til förufólks í sögnum 
og samfélagi/ eftir Jón Jónsson þjóðfræðing. Af því tilefni verður 
haldin kynning á bókinni þar sem Jón flytur erindi um efnið þriðjudaginn 
11. september kl. 15:00 í kennslustofunni G-102 sem er í húsinu Gimli 
sem er ein af byggingum Háskóla Íslands (á milli Odda og Aðalbyggingar).

Í kynningu á bókinni sem kemur út í ritröðinni /Sýnisbók íslenskrar 
alþýðumenningar /segir: Sögur af sérkennilegu fólki hafa lengi heillað 
Íslendinga. Þar á meðal eru fjölbreyttar sagnir um fátækt förufólk sem 
flakkaði um landið fyrr á öldum. Hér er fjallað um þessar frásagnir og 
stöðu flakkara í samfélaginu fram á 20. öldina. Þeir voru umtalaður 
hópur, rækilega jaðarsettur og oft líkari þjóðtrúarverum en manneskjum í 
sögunum. Hörmulegt atlæti Stuttu-Siggu í æsku, skringileg skemmtiatriði 
Halldórs Hómers, rifin klæði Jóhanns bera og uppreisnarseggurinn Sölvi 
Helgason koma öll við sögu.

Jón Jónsson er þjóðfræðingur sem býr og starfar norður á Ströndum,  Jón 
hefur unnið að margvíslegu safnastarfi og nýsköpunar- og 
miðlunarverkefnum á sviði þjóðfræði og starfar nú hjá Rannsóknasetri 
Háskóla Íslands á Ströndum - Þjóðfræðistofu sem hefur aðsetur á 
Hólmavík. Hann var áður menningarfulltrúi Vestfjarða og rak fyrirtækið 
Sögusmiðjuna.

Viðburðurinn er haldinn af Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild 
Háskóla Íslands í samvinnu við Miðstöð einsögurannsókna, Félag 
þjóðfræðinga og Rannsóknasetur HÍ á Ströndum.

Bestu kveðjur, Jón.


More information about the Gandur mailing list