[Gandur] Útsala á bókum

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Jan 27 12:35:52 GMT 2016


Í tilefni þess að 21. apríl næstkomandi verða liðin 45 ár frá því að fyrstu handritunum var skilað frá Danmörku hefur verið ákveðið á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að bjóða hina glæsilegu bók Góssið hans Árna á sérstöku tilboðsverði: 4.500 kr.

Þá hefur verið ákveðið að bjóða áhugasömum ýmsar eldri bækur á útsöluverði. Þetta eru útgáfur stofnunarinnar, þ. á m. miðaldarímur, riddarasögur og fleiri textaútgáfur, afmælisrit, doktorsritgerðir, bréfasöfn, ráðstefnurit, orðasöfn og rit um handritafræði og íslenskt mál. Nokkur hefti tímarita stofnunarinnar eru einnig í boði, útgáfur á efni úr þjóðfræðisafni, póstkort og veggspjöld stofnunarinnar. Þá verður hægt að fá afmælisrit Mettusjóðs, tvö rit Jóns Ólafssonar úr Grunnavík, tímaritið Són og rit Rímnafélagsins á góðu verði. Margir titlar hafa bæst við listann frá síðustu útsölu, sem haldin var fyrir tveimur árum.

Verð á bókum er frá 200 krónum en algengt verð er 600 og 800 krónur. Áhugasamir geta fengið sendan lista yfir þær bækur sem í boði eru ásamt verði þeirra með því að senda ósk þar um til Rósu Þorsteinsdóttur: rosat at hi.is en einnig er hægt að sækja listann á heimasíðu stofnunarinnar: http://www.arnastofnun.is/page/frettasafn_frett&detail=1028925  Þar er einnig hægt að fræðast nánar um flest ritin: http://www.arnastofnun.is/page/utgafa

Starfsmaður stofnunarinnar verður í Árnagarði, framan við innganginn á stofnunina á 2. hæð, þriðjudaginn 2. febrúar og miðvikudaginn 3. febrúar frá kl. 11 til kl. 14. Þar verða bækur til sýnis og tekið verður við pöntunum.

Fyrstir koma, fyrstir fá! Þar sem mjög fá eintök eru til af sumum bókanna verða pantanir afgreiddar í þeirri röð sem þær berast.


More information about the Gandur mailing list