[Gandur] Fwd: [Arnastofnun] Vinafélag Stofnunar Árna Magnússonar stofnað síðasta vetrardag!

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Mon Apr 18 16:12:59 GMT 2016



Begin forwarded message:

> Vinafélag Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Vinir Árnastofnunar, verður formlega stofnað síðasta vetrardag, 20. apríl 2016, klukkan 14.00, í Norræna húsinu í tilefni af því að 45 ár eru liðin frá heimkomu handritanna.
> 
> Árnastofnun er ein af grunnstoðum íslenskrar menningar og nauðsynlegt að hlúa að einstökum gagnasöfnum hennar og bæta aðgengi almennings að þeim.
> 
> Tilgangur félagsins er að styðja við starfsemi stofnunarinnar og halda á lofti margþættu hlutverki hennar.
> 
> Félagsmenn telja einnig mikilvægt að helstu menningarverðmæti þjóðarinnar, handritin sem eru hluti af heimsminjaskrá UNESCO, séu gerð aðgengileg og sýnileg almenningi.
> 
> Félagið er opið öllum þeim sem láta sig starfsemi stofnunarinnar varða.
> 



More information about the Gandur mailing list