[Gandur] Málþing Boðnar föstudaginn 15. apríl: Þema íslenska rímnahefðin fyrr og nú

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Apr 13 13:30:50 GMT 2016


Árlegt málþing Óðfræðifélagsins Boðnar verður haldið föstudaginn 15. apríl kl. 13.00–16.30 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, stofu 050.  Þema þingsins að þessu sinni er íslenska rímnahefðin fyrr og nú.

Dagskráin er sem hér segir en ítarlegri dagskrá með útdráttum er að finna í meðfylgjandi viðhengi.

13:00 Málþing sett

13:15 Bjarki Karlsson: Kerfisfræði rímnahátta: Söguleg þróun og vannýtt tækifæri

13:45 Eva María Jónsdóttir: Þrjár gerðir rímna af Gretti Ásmundarsyni

14:15 Helgi Skúli Kjartansson: Grímur og Gautur: Búarímur sem svar við Pétri Gaut?

14:45 Rósa Þorsteinsdóttir: „Það vill heldur djassinn ...“: Rímnakveðskapur á síðustu öld

15:15 Kaffihlé

15:30 Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir: Hvernig lín breytist í morðara: Um rímurnar af Mábil sterku og munnlega geymd þeirra.

16:00 Þórarinn Eldjárn: Er hægt að yrkja nútímarímur í alvöru?

16:30 Málþingi slitið

Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir


More information about the Gandur mailing list