[Gandur] Fornleifar á Kjalarnesi

Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir hsb3 at hi.is
Wed Feb 18 10:44:27 GMT 2015


Sælt veri fólkið!

Aðalfundur Sögufélagsins Steina á Kjalarnesi verður haldið í Fólkvangi (í Grundarhverfi við skólann) miðvikudaginn 25. febrúar nk. kl. 20.

Erindi kvöldsins flytur Margrét Björk Magnúsdóttir meistaranemi í fornleifafræði við HÍ. Yfirskrift þess er: „Fornleifar á Kjalarnesi“ og er byggt á meistaraverkefni Margrétar. Megin markmið hennar er að fá yfirsýn yfir skráðar fornleifar á Kjalarnesi með því að greina þær í minjaflokka, sem búnir voru til og hugsaðir sem yfirflokkar fyrir Skráningarstaðla fornleifa Minjastofnunnar Íslands. Í erindinu verður sagt frá helstu niðurstöðum greininganna, rætt um fornleifaskráningu og mikilvægi hennar, og fjallað um einstakar fornleifar á svæðinu. 

Sjá nánar í viðhengi! 

Allir velkomnir á Kjalarnesið! :)

Kær kveðja! Hrefna S. Bjartmarsdóttir þjóðfr.


More information about the Gandur mailing list