[Gandur] FW: Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins þri. 29. janúar: Guðni Th. Jóhannesson - Hvað ef? Íslandssagan sem gæti hafa gerst

Félag þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Mon Jan 28 14:43:29 GMT 2013


 

 

From: solveig at akademia.is [mailto:solveig at akademia.is] On Behalf Of Sólveig
Ólafsdóttir
Sent: 28. janúar 2013 09:09
To: forum at akademia.is
Subject: Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins þri. 29. janúar: Guðni Th.
Jóhannesson - Hvað ef? Íslandssagan sem gæti hafa gerst

 

Frá Sagnfræðingafélaginu

 


Kæru félagar,

 

Næstkomandi þriðjudag, þann 29. janúar, verður 8. fyrirlestur vetrarins í
hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands en á vormisseri er
yfirskrift fyrirlestraraðarinnar Hvað er sögulegur skáldskapur?

 

Guðni Th. Jóhannesson nýráðinn lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands mun að
þessu sinni flytja fyrirlesturinn „Hvað ef? Íslandssagan sem gæti hafa
gerst.“

 

Abstract:

Fólk hefur lengi velt því fyrir sér sem gæti hafa gerst í mannkynssögunni en
gerðist ekki. Hvað hefði gerst ef Persar hefðu lagt Grikkland undir sig í
fornöld? Hvað ef suðurríkin hefðu haft betur í bandarísku
borgarstyrjöldinni? Hvað ef Hitler hefði fallið í fyrri heimsstyrjöldinni?
Vissulega getur verið gaman að velta fyrir sér spurningum af þessu tagi en
hafa þær eitthvert gildi í sagnfræði? Í erindinu verður komist að þeirri
niðurstöðu að því megi hiklaust svara játandi. Hugleiðingar um það sem gæti
hafa gerst hjálpa okkur til að skilja betur hvers vegna svo fór sem fór
hverju sinni; hvað var nær óumflýjanlegt og hvað var eingöngu háð
tilviljunum og duttlungum örlaganna. Nefnd verða nokkur dæmi úr
Íslandssögunni þessu til stuðnings, allt frá þjóðveldi norrænna manna í
Vesturheimi fyrir þúsund árum til þýsks hernáms í seinna stríði og
bankahruns sem aldrei varð á okkar dögum.

 

Fyrir hönd Sagnfræðingafélags Íslands,

Vilhelm Vilhelmsson

 

 

-- 
Bestu kveðjur, 

Sólveig Ólafsdóttir
Framkvæmdastjóri / Executive Director
ReykjavíkurAkademían/ The Reykjavik Academy
solveig at akademia.is
solveig at simnet.is
símar: (+354) 5628565 / (+354) 8921215
_____________________________

ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121
107 Reykjavík
www.akademia.is



More information about the Gandur mailing list