[Gandur] Bókatilboð mánaðarins

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Feb 15 12:12:22 GMT 2012


Ég biðst afsökunar á ónæðinu ef þið fáið þetta mörgum sinnum.

Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur verið ákveðið að bjóða áhugasömum ýmsar bækur á tilboðsverði. Þetta eru eldri útgáfur stofnunarinnar, þ. á m. miðaldarímur, riddarasögur o.fl. textaútgáfur, afmælisrit, doktorsritgerðir, bréfasöfn, ráðstefnurit, orðasöfn og rit um handritafræði og íslenskt mál. Nokkur hefti tímarita stofnunarinnar eru einnig í boði, útgáfur á efni úr þjóðfræðisafni, póstkort og veggspjöld stofnunarinnar. Þá verður hægt að fá rit Jóns Ólafssonar úr Grunnavík og afmælisrit Mettusjóðs á góðu verði.

Verð á bókum er frá 400 krónum en algengt verð er 800 og 1000 krónur. Áhugasamir geta fengið sendan lista yfir þær bækur sem í boði eru ásamt verði þeirra með því að senda ósk þar um til Rósu Þorsteinsdóttur: rosat at hi.is en einnig er hægt að sækja listann á heimasíðu stofnunarinnar. Þar er einnig hægt að fræðast nánar um flest ritin: http://www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_utgafa

Starfsmaður stofnunarinnar verður í Árnagarði, framan við innganginn á stofnunina á 2. hæð, fimmtudaginn 16. febrúar og föstdaginn 17. febrúar frá kl. 12 til kl. 14. Þar verða bækur til sýnis og tekið verður við pöntunum.

Fyrstir koma, fyrstir fá! Þar sem fá eintök eru til af sumum bókanna verða pantanir afgreiddar í þeirri röð sem þær berast.


More information about the Gandur mailing list