[Gandur] Marteinn H. Sigurðsson um Grím geitskó og upphaf Alþingis

Terry Gunnell terry at hi.is
Mon Feb 20 11:47:52 GMT 2012


 

 

From: arnastofnun-bounces at listar.hi.is
[mailto:arnastofnun-bounces at listar.hi.is] On Behalf Of Jóhanna
Sent: 20. febrúar 2012 11:17
To: arnastofnun at listar.hi.is
Subject: [Arnastofnun] Marteinn H. Sigurðsson um Grím geitskó og upphaf
Alþingis

 

Félag íslenskra fræða: Marteinn Helgi Sigurðsson um Grím geitskó og upphaf
Alþingis

 

Annað rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á vormisseri 2012 verður haldið
miðvikudagskvöldið 22. febrúar kl. 20 í fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar,
JL-húsinu, Hringbraut 121, 107 Reykjavík (athugið breyttan fundarstað). Þar
mun Marteinn Helgi Sigurðsson halda erindi sem hann nefnir „Grímur geitskór
og upphaf Alþingis. Um frásögn Íslendingabókar af sendiför Gríms geitskós og
stofnun allsherjarþings á Þingvöllum við Öxará“.

Marteinn lýsir erindi sínu á þessa leið: Í öðrum kafla Íslendingabókar Ara
fróða Þorgilssonar frá því um 1130 segir frá því er Úlfljótur, maður
„austrænn“, kom með lög til Íslands frá Noregi kringum árið 930 þegar
þjóðþing
skyldi fyrst háð hér á landi. Í framhaldi af því stendur: „En svá er sagt,
að Grímur geitskór væri fóstbróðir hans, sá er kannaði Ísland allt að ráði
hans áður alþingi væri átt. En honum fékk hverr maður pening til á landi
hér, en hann gaf fé það síðan til hofa.“ Í fyrirlestrinum verður reynt að
varpa nýju ljósi á Grím geitskó og hugmyndir um hlutverk hans þegar alþingi
Íslendinga var fundinn staður þar sem nú heitir Þingvellir við Öxará. Í því
sambandi verður meðal annars fjallað um bardagann mikla sem braust út á
þinginu eftir Njálsbrennu um árið 1011 samkvæmt annálum og Njáls sögu.

Marteinn H. Sigurðsson er M.Phil. í miðaldasögu frá háskólanum í St. Andrews
á Skotlandi og doktor í norrænum
fræðum frá háskólanum í Cambridge á Englandi. Hann er lektor í íslenskum
fræðum við Kaupmannahafnarháskóla.

Allir velkomnir.

-------------- next part --------------
An embedded and charset-unspecified text was scrubbed...
Name: Untitled attachment 00019.txt
Url: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20120220/6be80e7e/attachment.txt 


More information about the Gandur mailing list