[Gandur] [Fwd: Á morgun: "Af hverju eru konur með fætur? Eiginkon ur , ljóskur, hórur og fleiri kvenpersónur í nýlegum íslenskum bröndurum"]

Eva Þórdís Ebenezersdóttir ethe3 at hi.is
Wed Feb 15 12:01:54 GMT 2012


um að gera að brjóta upp daginn með góðu hádegis erindi :)

með bestu kveðju
              Eva Þórdís



Heil og sæl
Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur með opin fyrirlestur á morgun,
fimmtudagurinn 16. febrúar 2012
Með kveðju, Ása


----- Forwarded by Ása Bernharðsdóttir/HI/IS on 15.02.2012 11:14 -----

From:
RIKK - Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum <rikk at hi.is>
To:
<hi-starf at hi.is>
Date:
15.02.2012 10:06
Subject:
[Hi-starf] Á morgun: "Af hverju eru konur með fætur? Eiginkonur, ljóskur,
hórur og fleiri kvenpersónur í nýlegum íslenskum bröndurum"



Af hverju eru konur með fætur? Eiginkonur, ljóskur, hórur og fleiri
kvenpersónur í nýlegum íslenskum bröndurum
Á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar, heldur Bryndís Björgvinsdóttir, M.A. í
þjóðfræði, hádegisfyrirlestur sem ber heitið ?Af hverju eru konur með
fætur? Eiginkonur, ljóskur, hórur og fleiri kvenpersónur í nýlegum
íslenskum bröndurum". Fyrirlesturinn fer fram í Öskju, stofu 132, kl.
12:00-13:00.
Frá árinu 2000 hafa þjóðfræðanemar við Háskóla Íslands reglulega safnað
þjóðfræðadæmum ? bröndurum, flökkusögnum, orðrómum, siðum og öðru af
svipuðu toga ? sem eru í umferð hverju sinni. Dæmin eru nú orðin yfir tvö
þúsund talsins og þar á meðal eru sex hundruð og fimmtíu brandarar. Þeir
hafa nú verið flokkaðir, ásamt hinum dæmunum, greindir og færðir inn í
gagnagrunn í von um að þeir geti nýst sem aðgengilegar heimildir í ýmis
konar rannsóknum. Börn, dýr, dauði, elli, fordómar, frægð, fyllerí, gort,
innflytjendur, mannát, kynin, ljóskur, peningar, prestar, skyndibitastaðir
og útlitsdýrkun má nefna sem örfá dæmi um þau þemu eða minni sem
brandararnir búa yfir. Meira en þriðjungur af þessum bröndurum fjalla um
kynin, og þá sérstaklega um áætlaðan eðlismun kynjanna ? hvernig karlar
eru, hvernig konur eru, og hvernig þeim kemur ekki saman.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um einkenni brandara á okkar dögum, en
þeir eru að stórum hluta lausir við þau mótunaráhrif og ritskoðun sem
einkennir opinbera menningu. Brandarar geta því endurspeglað viðhorf sem
sjaldan eru viðruð opinberlega en eiga sér þó ákveðinn hljómgrunn hjá
minni eða stærri hópum í samfélaginu. Því má segja að brandarar geti gefið
okkur aðra mynd af  ?almenningsálitinu? en til að mynda fjölmiðlar og
skoðanakannanir draga upp. Í fyrirlestrinum verður þá sérstaklega rýnt í
brandara um mismun og eðli kynjanna, og leitast verður við að sýna og
útskýra þá birtingarmynd kvenna sem þeir endurspegla.

Öll velkomin!
www.rikk.hi.is


 _______________________________________________
Þessi póstur var sendur á póstlistann Hi-starf at listar.hi.is.
Efni hans og innihald eru á ábyrgð sendanda og endurspegla
ekki endilega stefnu Háskóla Íslands í einstökum málum.
Sjá http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf og
news:hi.listar.hi-starf.


More information about the Gandur mailing list