[Gandur] Góssið hans Árna

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Oct 25 10:21:32 GMT 2011


Miðvikudaginn 26. október flytur Guðrún Ása Grímsdóttir annað erindið  
í röðinni Góssið hans Árna. Guðrún Ása mun fjalla um skjalabækur sem  
Árni Magnússon fékk léðar í Holti í Önundarfirði sumarið 1710.  
Bækurnar voru gerðar í Vatnsfirði og Holti á seinni hluta 17. aldar og  
geyma uppskriftir dóma og skipana biskupa og konunga til Íslendinga,  
þær eru einskonar handbækur í lögum og rétti. Sérstaklega verður  
greint frá efni einnar bókarinnar.

Erindið verður haldið í bókasal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu  
og hefst kl. 12.15. Það stendur í um hálfa klukkustund og síðan gefst  
gestum kostur á að skoða það handrit sem er aðalefni erindisins.


_______________________________________________
Arnastofnun mailing list
Arnastofnun at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/arnastofnun


More information about the Gandur mailing list