[Gandur] Róðu betur, kær minn karl

Óli Gneisti Sóleyjarson oligneisti at gmail.com
Wed Jan 26 10:35:21 GMT 2011


Spegill fortíðar – silfur framtíðar


Farandverkafólk og sjókonur fyrri alda
Á áttunda áratug síðustu aldar urðu viss straumhvörf í efnahagskerfi
heimsins.  Hagvöxtur snarminnkaði, tekjur af framleiðslu og verslun drógust
saman, atvinnuleysi gerði vart við sig. Það var verið að tæknivæða
sjávarútveginn með skuttogarakaupum, byggja og endurnýja frystihús og
endurskipuleggja vinnuferli í vinnslunni.  Íbúum smærri útgerðarstaða
fækkaði stórlega. Fjölmenn kynslóð um tvítugt var að hleypa heimdraganum, og
ekki aðeins á Íslandi. Ungar erlendar konur í hundraðatali áttu tímabundið
greiða leið inn í þetta nýstárlega vinnuumhverfi. Sigurlaug Gunnlaugsdóttir,
sagnfræðingur fjallar um farandverkafólk í sjávarútvegi og hagsveiflur á
áttunda áratug.
 "Róðu betur, kær minn karl" - Af sjókonum á 18. öld

Ragnhildur Bragadóttir, sagnfræðingur fjallar um sjósókn íslenskra kvenna á
18. og fyrri hluta 19. aldar.
Lýst er margvíslegum aðstæðum þeirra í byggðarlögum kringum landið, og
einkum dvalið við eyjabyggðir og útnesja. Könnuð er aðbúð, samfélagsstaða,
launakjör og afköst á umræddu skeiði. Sagt er allítarlega frá lífshlaupi
nokkurra nafngreindra kvenna og einkum lýst auðkennum og örlögum tveggja
kunnustu kvenna tímabilsins, Látra-Bjargar og Þuríðar formanns, sem voru
einkennilega ólíkar að eðli og upplagi, en áttu það sammerkt að fara ekki
troðnar slóðir og beygja aldrei kné sín fyrir neinum.
Önnur endaði ævina á sveit; hin varð hungurmorða á vergangi.
Fram kemur að konur sóttu sjóinn á stórum, opnum áraskipum, áttræðingum eða
tíræðingum, og voru þrásinnis komnar á steypirinn. Þær voru yfirleitt mun
verr búnar en karlarnir. Taldist til undantekninga að þær væru í brókum að
neðan. Ætíð var lagt frá landi í góðu veðri, en það gat breyst í einu
vetfangi. Ef logn var, varð að taka róður, 6-7 vikur sjávar (vika
sjávar=7,5-9 km), til að komast á miðin, og liggja síðan 1-2 sólarhringa
eftir því hversu fljóttekin veiðin var. Á vorvertíð 1724 fórust fjórir
fiskibátar úr Höskuldsey og með þeim 18 manns, þar af 8 konur. Má af því
ráða að í eyjaverstöðvum Breiðafjarðar hafi fiskibátar stundum verið
mannaðir fast að því eins mörgum konum og körlum.

Róðu betur, kær minn karl,
kenndu ekki í brjósti' um sjóinn.
Þótt harðara takirðu herðafall -
hann er á morgun gróinn !
Björg Einarsdóttir frá Látrum


Staður og stund:
Sjóminjasafnið Víkin, Grandagarði 8,
101 Reykjavík
Laugardaginn 5. febrúar klukkan 11:00-13:00


More information about the Gandur mailing list