[Gandur] Heimildarmyndin ,,Súðbyrðingur - saga báts" sýnd í Bíó Paradís.

asdis asdis at gjola.is
Thu Jan 20 11:05:02 GMT 2011



Heimildamyndin ,,Súðbyrðingur - saga báts" verður sýnd frá 22. janúar   
til 10. febrúar í Bíó Paradís við Hverfisgötuna.
Sýningartíma má sjá í dagblöðum og á alnetinu undir www.bioparadis.is  
(dagskrá vikunnar).


Fjórir menn taka sér fyrir hendur að smíða bát eftir Staðarskektunni,  
sem fúnað hefur í grasi í Reykhólasveit.  Samhliða því sem nýi  
báturinn tekur á sig mynd er sögð saga bátasmíða á Norðurlöndum.   
Byrjað er á kilinum, sem þróaðist frá eintrjáningi steinaldar, og svo  
dýpkar frásögnin eftir því sem báturinn er byrtur, sagt frá skinnbátum  
bronsaldar og helluristum, fórnum á bátum og mönnum til ókunnra guða,  
en elsti súðbyrðingurinn sem vitað er um varðveittist á einum slíkum  
blótstað, sýnd hin glæstu skip víkingaaldar, sagt frá selveiðimönnum í  
Eystrasaltinu sem lögðust út á ísinn og sváfu í einkennilega löguðum  
bátum sínum, og áfram er smíðað, böndin og borðstokkarnir, og þá er  
komið til Færeyja þar sem keppt er í róðri í nýrri gerð af  
súðbyrðingum á Ólafsvöku.  Að lokum er báturinn klár og seglin saumuð  
og þá er sjósetning og siglt út á fjörðinn, til fortíðar smiðanna  
sjálfra, þar sem súðbyrðingar voru smíðaðir og notaðir  - heima.

Báturinn er trúarlegt tákn. Í þessum ,,báti" sem kvikmyndin er, rúmast  
margt, svo sem handbragð, heiðindómur, verslunarsaga, veiði, dauði og  
hátíðir. Í gegnum báta og skip tengjast hættir og saga þeirra þjóða  
sem búa á Norðurlöndum.

Ásdís Thoroddsen leikstýrir og Hálfdán Theódórsson kvikmyndar.   
Tónlistina semur Þórður Magnússon.  Steinþór Birgisson litgreinir og  
Gunnar Árnason blandar hljóð.  Smiðir eru Hafliði Aðalsteinsson,  
Eggert Björnsson, Hjalti Hafþórsson og Aðalsteinn Valdimarsson.   
Myndin var tekin upp á Íslandi, Danmörku, Noregi, Færeyjum, Finnlandi,  
Svíþjóð og Þýskalandi.  Framleiðendur eru Ásdís Thoroddsen og Fahad  
Falur Jabali á vegum Gjólu kvikmyndagerðar.


Ásdís Thoroddsen,
Gjóla ehf,
Bergstaðastræti 28 A,
101 Reykjavík,
Iceland.

S:    + 354 552 4456
FS:  + 354 868 9771
http:// www.gjola.is





More information about the Gandur mailing list