[Gandur] Viltu vera með framlag á Fólkvangi í júní?
Rósa Þorsteinsdóttir
rosat at hi.is
Thu Jan 20 10:28:06 GMT 2011
Viltu vera með?
Vitið þér enn – eða hvað? Samtal um rætur
Fjölþjóðlegur Fólkvangur í Hofi og víðar á Akureyri, 19. – 21. Júní
2011
Hugað verður að norrænum, keltneskum, inúítskum og samískum
menningarrótum kvenna og við veltum því fyrir okkur hvernig við getum
best nýtt þennan menningararf til að búa börnum okkar betri heim.
Fólkvangurinn er „samtal“ milli fræða, lista og iðju, kvenna og karla,
sem telja mikilvægt að týna ekki menningararfinum, og vilja byggja
heim þar sem konur og karlar lifa í jafnvægi og sátt við náttúruna og
hvert annað.
Ef þú vilt vera með framlag: erindi, vinnustofu, listsýningu (eða
þátttöku í slíku), gjörning ... eða hvað sem er í tengslum við
Fólkvanginn (á mánudaginn 20.júní eða eftir hinn formlega Fólkvang)
hafðu þá samband með því að senda tölvupóst á mardoll at vanadis.is . Í
viðhengi eru nánari upplýsingar og eyðublað fyrir framlög. Sjá einnig
áwww.mardoll.is
Þú getur skráð þig á Fólkvanginn á yourhost at yourhost.is ef þú vilt
vera með án þess að vera með framlag.
Fólkvangurinn er samstarfsverkefni Mardallar – félags um menningararf
kvenna, AkureyrarAkademíunnar, Handraðans, Jafnréttisstofu,
Listasumars, Norrænu upplýsingaskrifstofunnar, Stofnunar Vilhjálms
Stefánssonar, Vanadísar o.fl.
F.h. Samráðshópsins.
Valgerður H. Bjarnadóttir, verkefnisfreyja
Mardöll - félag um menningararf kvenna
AkureyrarAkademíunni
Þórunnarstræti 99
600 Akureyri
Sími: 895 3319
Mailto:mardoll at vanadis.is
www.mardoll.is
More information about the Gandur
mailing list