[Gandur] Afmælisrit með greinum tengdum þjóðfræði

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Jan 19 09:59:01 GMT 2011


AFMÆLISRIT JÓNÍNU HAFSTEINSDÓTTUR


Jónína Hafsteinsdóttir, starfsmaður á nafnfræðisviði Stofnunar Árna  
Magnússonar í íslenskum fræðum og áður á Örnefnastofnun Íslands,  
verður sjötug 29. mars næstkomandi. Árnastofnun hyggst halda upp á  
tímamótin og þakka Jónínu farsælt starf um langt skeið með því að gefa  
út afmælisrit til heiðurs henni. Í ritið skrifa samstarfsmenn og  
félagar Jónínu, fólk sem hefur komið að örnefnamálum víða um land og  
fólk sem átt hefur í samskiptum við hana gegnum störf hennar.

Í ritinu verða yfir 20 greinar. Höfundar þeirra eru Ari Páll  
Kristinsson, Árni Björnsson, Birna Lárusdóttir, Bjarni F. Einarsson,  
Bjarni Harðarson, Guðlaugur R. Guðmundsson, Guðrún Kvaran, Gunnlaugur  
Ingólfsson, Hallgrímur J. Ámundason, Haukur Jóhannesson, Helgi  
Björnsson, Hjörleifur Guttormsson, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir,  
Katla Kjartansdóttir, Kjartan Ólafsson, Kristján Eiríksson, Páll  
Pálsson, Reynir Ingibjartsson, Sigurður Helgason, Sigurjón Páll  
Ísaksson, Svavar Sigmundsson, Valgarður Egilsson og Ævar Petersen.  
Umfjöllunarefni greinanna tengist örnefnum á einn eða annan hátt.  
Fjallað er um örnefni í Drangey og í Mánáreyjum, í Orkneyjum og í  
Djúpi, á Snæfellsnesi, í Reykjavík, á Ströndum, í Dölum og víðar.  
Aðrar greinar snúast um aldur örnefna, örnefni kennd við ræningja og  
paura, örnefni á jöklum, örnefni tengd nykrum, rostungum, draugum og  
hestum, örnefni í vasabókum, örnefni sem hafa mörg heiti og rithætti  
örnefna og ríkjaheita.

Ráðgert er að ritið komi út kringum afmælisdag Jónínu 29. mars. Fremst  
í því verður heillaóskaskrá eða tabula gratulatoria og er móttakendum  
þessa bréfs nú boðið að heiðra Jónínu með því að gerast áskrifendur að  
ritinu og fá nafn sitt á heillaóskaskrána. Þeim sem vilja gerast  
áskrifendur er bent á að senda ósk þess efnis til Kára Kaaber hjá  
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á netfangið kari at hi.is.  
Vinsamlega tilgreinið hvernig nafn eða nöfn einstaklinga eða stofnana  
eiga að birtast. Látið kennitölu og heimilisfang líka fylgja með.  
Aðeins er gert ráð fyrir að birta nöfn en ekki titla eða heimilisföng.  
Best er að tilkynna þátttöku strax og greiðsla þarf að berast eigi  
síðar en í byrjun mars.

Verð bókarinnar er 4200 kr. og áætlað að hún verði kringum 250 bls.  
Ganga má frá greiðslu með því að leggja upphæðina inn á reikning  
Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, kt. 700806-0490, nr.  
0137-05-065007. Skýring greiðslu: Afmælisrit Jónínu. Senda má  
staðfestingu á greiðslu í heimabanka á netfangið kari at hi.is. Einnig má  
greiða með greiðslukorti og þarf þá að koma upplýsingum um kortanúmer  
og gildistíma til Kára Kaaber í tölvupósti (kari at hi.is) eða í síma  
552-8530/525-4443, bréfasíma 562-2699.

Í ritstjórn afmælisritsins eru Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason  
og Svavar Sigmundsson.


More information about the Gandur mailing list