[Gandur] Nýr geisladiskur

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Oct 26 11:05:06 GMT 2010


Vappaðu með mér Vala. Ása Ketilsdóttir kveður, syngur og segir sögur
Út er kominn geisladiskurinn Vappaðu með mér Vala, þar sem Ása  
Ketilsdóttir (f. 1935) fer með ýmsan fróðleik. Ása fæddist á Ytra- 
Fjalli í Aðaldal en hefur verið búsett á Laugalandi við Ísafjarðardjúp  
í rúmlega hálfa öld. Á diskinum flytur Ása fjölbreytilegan kveðskap,  
vísur, þulur, rímur og kvæði, og segir nokkrar sögur. Strandagaldur á  
Hólmavík gefur diskinn út í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í  
íslenskum fræðum, en auk þess höfðu Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur  
og Skúli Gautason, sem sá um upptökur og hljóðvinnslu, umsjón með  
útgáfunni. Með diskinum fylgir veglegur bæklingur skreyttur teikningum  
sem eru æskuverk Ásu sjálfrar, en Ásta Þórisdóttir hannaði útlitið.


Diskurinn er fáanlegur á skrifstofu Árnastofnunar en einnig er hægt að  
kaupa hann í vefbúð og verslun Strandagaldurs, sem sér einnig um  
dreifingu. Slóðin inn á heimasíðu útgáfunnar er www.galdrasyning.is/asudiskur 
  Þar er hægt að skoða bæklinginn sem fylgir útgáfunni í vefformi og  
panta diskinn.

Verð: 3.200 kr.

Diskurinn á facebook síðu og þar er einnig hægt að sjá þegar Ásu voru  
afhent fyrstu eintökin af diskinum og viðtal við hana.




More information about the Gandur mailing list