[Gandur] Þjóðfræði á Þjóðarspegli og prófessors fyrirlestur Terrys Gunnell

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Mon Oct 25 12:30:15 GMT 2010


Kæru þjóðfræðingar,

Þjóðarspegillinn, árleg ráðstefna félagsvísindanna í Háskóla Íslands, er
núna á föstudaginn 29. október. Á milli 11-17 verða þrjár málstofur í
þjóðfræði með tólf fyrirlestrum sem kynna nýjustu rannsóknir í faginu (í
stofu 201 í Odda).

Daginn áður, fimmtudaginn 28. október milli 16.30-18.30, flytja nýskipaðir
prófessorar í Félags- og mannvísindadeild prófessorsfyrirlestra sína í
stofu 104 á Háskólatorgi. Fyrstur á svið er okkar eigin Terry Gunnell, sem
fjallar um hlutverk Óðins í íslensku samfélagi fyrir kristnitöku.

Dagskrá þjóðfræðinnar á Þjóðarspeglinum á föstudaginn er síðan sem hér segir:

11.00-12.50: Þjóðfræði miðalda (Oddi 201)
--Gísli Sigurðsson: Njáls saga og hefðin sem áheyrendur þekktu
--Aðalheiður Guðmundsdóttir: Af betri konum og bóndadætrum: Um stéttbundna
misnotkun kvenna í fornaldarsögum og öðrum afþreyingarbókmenntum miðalda
--Ingunn Ásdísardóttir: Bors synir “bjöðum ypptu” – or did they?
--Valdimar Tr. Hafstein: Höfundur ókunnur: Höfundaréttur og höfundarleysi

13.00-14.50: Þjóðfræði síðari alda (Oddi 201)
--Símon Jón Jóhannsson: Skolli, skolli, skíttu í hverju horni: Um
skollaleik í sögulegu ljósi
--Júlíana Þóra Magnúsdóttir: Þjóðsagnasöfnun og kyngervi: Um
þjóðsagnasöfnun Torfhildar Þorsteinsdóttur Hólm og mótun íslenskrar
þjóðsagna(söfnunar)hefðar
--Rósa Þorsteinsdóttir: Söguhetjan, góða stjúpan og hjálparhellurnar:
Íslensk ævintýri af gerðinni 556*
--Eiríkur Valdimarsson: Gáð til veðurs: Rannsókn á veðurgleggni Íslendinga
og hæfileikanum að lesa í náttúruna

15.00-16.50: Þjóðfræði samtímans (Oddi 201)
--Kristín Einarsdóttir: Áramótaskaupið og aðrar óspektir um áramót
--Jón Þór Pétursson: Lífrænt fólk
--Bryndís Björgvinsdóttir og Valdimar Tr. Hafstein: „Að fæla fólk frá...“:
Eftirlitsmyndavélar í miðborg Reykjavíkur
--Kristinn Schram: Obscurity as heritage: The Þorrablót revisited

Ég hvet alla þjóðfræðinga og vini þjóðfræðinnar til að mæta á þessa árlegu
uppskeruhátíð og kynna sér þannig á einum degi það helsta sem er að gerast
í faginu hér á land, fá innsýn í allar nýjustu rannsóknirnar og taka þátt
í umræðum.

Bestu kveðjur,
Valdimar


More information about the Gandur mailing list