[Gandur] Þjóðfræði í mynd: Frumsýning á föstudag kl. 15 (á morgun )

Valdimar Tryggvi Hafstein vth at hi.is
Thu Oct 21 10:14:27 GMT 2010


Þjóðfræði í mynd: Þáttaröð um þjóðfræði

Frumsýning á föstudaginn í stofu 101 í Odda kl. 15.00-17.00

Þættirnir eru fimm talsins og hver um sig byggir á einni nýlegri
BA-ritgerð í þjóðfræði:

M og R er merkið mitt: Hefðir og siðir í MR
- Höfundur ritgerðar: Cilia Marianne Úlfsdóttir
- Auk höfundar er rætt við Einar Lövdahl Gunnlaugsson inspector scholae í
MR, Kristínu Einarsdóttur aðjúknt í þjóðfræði og Þorstein Guðmundsson
fyrrverandi MR-ing.

Þjóðhátíð í Eyjum fyrr og nú
- Höfundur ritgerðar: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Auk höfundar er rætt við Terry Gunnell prófessor í Þjóðfræði

Stefnumót við Bakkus
- Höfundur ritgerðar: Steinunn Guðmundardóttir
- Auk höfundar er rætt við Gísla Sigurðsson rannsóknarprófessor við
Stofnun Árna Magnússonar

Íslenski þjóðbúningurinn
- Höfundur ritgerðar: Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
- Auk höfundar er rætt við Valdimar Tr. Hafstein dósent í þjóðfræði

Ull er gull: Lopapeysan við upphaf 21. aldarinnar
- Höfundur ritgerðar: Soffía Valdimarsdóttir
- Auk höfundar er rætt við Jón Þór Pétursson doktorsnema og stundakennara
í þjóðfræði

Þrír þættir verða sýndir fyrir hlé og tveir eftir hlé en að sýningunni
lokinni gefst tími fyrir stuttar umræður.

Nánari upplýsingar:

Í sumar fengum við, Ólafur Ingibergsson og Björk Hólm, styrk frá
Nýsköpunarsjóði námsmanna til að framkvæma verkefni undir leiðsögn
Valdimars Tr. Hafstein. Við gerðum  stutta þætti upp úr nýlegum B.A.
ritgerðum í þjóðfræði sem verða kynntir framhaldsskólakennurum og vonandi
nýttir meðfram öðru kennsluefni  í framhaldsskólum, en verða auk þess
gerðir aðgengilegir á netinu fyrir alla sem vilja skoða þá.

Nú er komið að því að frumsýna afrakstur vinnu okkar. Þættirnir verða
allir sýndir á föstudaginn næstkomandi., 22. október, í stofu 101 í Odda
kl. 15.00. Þrír þættir verða sýndir fyrir hlé og tveir eftir hlé en að
sýningunni lokinni gefst tími fyrir stuttar umræður.

Það myndi gleðja okkur mikið ef þú sæir þér fært að vera viðstaddur
frumsýninguna og taka þátt í umræðum á eftir.

Kær kveðja,

Björk Hólm
Ólafur Ingibergsson






More information about the Gandur mailing list