[Gandur] Frá Félagi íslenskra fræða

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Oct 20 11:26:20 GMT 2010


Annað rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á þessu haustmisseri  
verður haldið *fimmtudaginn **21. október*, kl. 20 í húsi  
Sögufélagsins, Fischersundi 3**. Þar flytur *Haukur Ingvarsson*,  
íslenskufræðingur og höfundur bókarinnar */Andlitsdrættir  
samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness/*, samnefndan  
fyrirlestur. Höfundur lýsir erindi sínu á þessa leið:

„Árið 1968, þegar /Kristnihald undir Jökli/ kemur út, er Halldór  
Laxness sextíuogsex ára. Á áratugnum sem fer í hönd er hann ákaflega  
afkastamikill. Hann sendir frá sér tvær skáldsögur til viðbótar með  
tveggja ára millibili, /Innansveitarkroniku/ (1970) og /Guðsgjafaþulu/  
(1972). Í kjölfarið koma fjórar minningabækur hver af annarri. Þessi  
skyndilegi kippur í frásagnaskáldskap vekur nokkra furðu, einkum í  
ljósi þess að Halldór hafði verið ómyrkur í máli um framtíð  
skáldsögunnar allt frá miðjum sjötta áratugnum og ekki var útlit fyrir  
að hann léti af leikritasmíð þegar komið var fram á þann sjöunda. Í  
erindinu verður fjallað um rannsóknir á þremur síðustu skáldsögum  
Halldórs Laxness og velt upp spurningum sem varða samtímaviðtökur  
þeirra og stöðu í bókmenntaumræðu á seinustu árum. Mun minna hefur  
verið fjallað um /Guðsgjafaþula/ og /Innansveitarkronika/ en / 
Kristnihald undir Jökli/ og verður leitast við að skýra hvers vegna  
svo sé.“

Haukur Ingvarsson er með M.A.-próf í íslenskum bókmenntum frá Háskóla  
Íslands og er höfundur bókarinnar /Andlitsdrættir samtíðarinnar:  
Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness/ sem Hið íslenzka bókmenntafélag  
gaf út í ritstjórn Þorleifs Haukssonar.

Allir eru velkomnir.


Bestu kveðjur,
Sesselja Helgadóttir
formaður Félags íslenskra fræða


More information about the Gandur mailing list