[Gandur] Tveir fyrirlestrar um samtímaljósmyndun

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed May 12 10:15:41 GMT 2010


Föstudaginn 14. maí verða tveir fyrirlestrar um samtímaljósmyndun haldnir 
í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrri fyrirlesturinn fjallar um 
finnska samtímaljósmyndun, en sá seinni um lettneska samtímaljósmyndun. 
Fyrirlestrarnir fara fram á ensku og eru öllum opnir.
Kl. 12:15: Finnsk Samtímaljósmyndun
Harri Pälviranta fjallar um ljósmyndaröðina Barinn (Battered) sem má sjá á 
sýningunni Núna-The Present is Now í Norræna Húsinu á dagskrá 
Listhahátíðar 2010.  Fyrirlesturinn er unnin í  samstarfi við Félag 
íslenskra samtímaljósmyndara.
Léttar veitingar í boði Finnska sendiráðsins. 
Harri Pälviranta (f.1971) útskrifaðist með BA gráðu í ljósmyndun frá Turku 
Arts Academy 2000 og með MA fjölmiðlafræði frá Háskólanum í Turku 2005. 
Hann vinnur nú að doktorsgráðu í ljósmyndun við University of Art and 
Design Helsinki. Helstu viðfangsefni Harris eru samfélagslega eðlis svo 
sem ofbeldi og karlmaðurinn.  Fræðilega séð má flokka megin þorra verka 
hans sem skrásetningu. Með skrásetningu er þá verið að ýja að hugmyndum 
svo sem fjöbreytileiki eða frásögn á hinu raunverulega sem síðan verður að 
“endursköpuðum raunveruleika”. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim, 
bæði í einka- og samsýningum. 

Kl. 13:30: Kynning á lettneskri samtímaljósmyndun
Inese Baranovska listfræðingur og sýningarstjóri í Riga heldur kynningu á 
samtímaljósmyndun í Lettlandi í boði Norræna menningarsjóðsins. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100512/48cdeb69/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list