[Gandur] Þjóðbúningadagur sunnudaginn 14. mars

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Mar 9 16:58:04 GMT 2010


Fréttatilkynning:
Þjóðbúningadagur 
í Þjóðminjasafni Íslands
Sunnudaginn 14. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. 
Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. 
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eiga búning til að nota hann og 
jafnframt fyrir alla sem eru áhugasamir um íslenska þjóðbúninga að koma og 
sjá fjölbreytni búninganna. Mögulegt verður að fá aðstoð við uppsetningu 
höfuðbúnaðs á safninu. Sérstaklega er hvatt til þess að fólk mæti á 
þjóðbúningi síns heimalands. Á Torgi við Safnbúðina verða sýndar nokkrar 
af þjóðbúningabrúðum Sigríðar Kjaran, sem hún færði safninu að gjöf árið 
2001. 
Viðburðurinn hefst kl. 14:00
Aðgangur er ókeypis fyrir alla sem mæta í safnið á þjóðbúningi.

Að Þjóðbúningadeginum standa Þjóðminjasafn Íslands, Heimilisiðnaðarfélag 
Íslands, Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Þjóðbúningaráð og Þjóðbúningastofa og 
munu framangreindar stofnanir og félög kynna starfsemi sína.
Með bestu kveðju, 
Helga Vollertsen 
Kynningarstjóri 
Þjóðminjasafni Íslands 
v/Suðurgötu 
101 Reykjavík 
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100309/e32c12a1/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 47661 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100309/e32c12a1/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list