[Gandur] Narcissus á norðurhveli - fréttatilkynning

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Thu Mar 11 09:09:57 GMT 2010


*ÍNOR <http://www.inor.is> og ReykjavíkurAkademían kynna:*

* *





*Fyrirlestraröð um ímyndir og sjálfsmyndir.*

*Í samstarfi við Háskólann á Bifröst*

* *

Annar fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121
frá kl. 12:00 -13:00 föstudaginn 12. mars í fyrirlestrarsal á 4. Hæð.

Upptöku af fyrirlestrinum má nálgast á vef  Háskólans á Bifröst (
www.bifrost.is) á meðan röðin stendur yfir

Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg

www.inor.is





*Narcissus á norðurhveli
*

*Högni Óskarsson
*



Goðsögnin um Narcissus fjallar um sjálfshrifningu-og dýrkun. Skilgreining
sálkönnunar nær miklu dýpra og lýsir því hvernig narsissistinn ver sig gegn
fyrirlitningu á eigin sjálfi með eigin upphafningu og um leið kulda og
grimmd í garð annarra, sem eyðileggur hann á endanum.
Í íslenskri sögu frá söguöld, gegnum dimmar miðaldir, rómantíska sýn 19. og
20. aldar og í gegnum afbyggingu raunveruleika og upphafningu hinna
loftkenndu ímynda samtímans má finna margt sem samsvarar skilgreiningum
geðlæknis-og sálarfræði á narsissistiskri persónuleikaröskun. Hið ýkta
hegðunarmynstur og brenglaða gildismat nútímans greinir sig aðeins frá hinu
liðna í hærra neyslustigi og táknmyndum samfélagsins, undirliggjandi
togstreita narsissistans er um margt óbreytt.
Græðgisvæðingin er ekki séreinkenni nútímans. Heldur ekki hetjuímyndin. Munu
þessi fyrirbæri því ekki ganga aftur? Og aftur?

Kannske er mannsheilinn bara forritaður á þennan hátt af Forritaranum Mikla.
Hvað og hverjir eru til bjargar?

Högni Óskarsson er starfandi geðlæknir og vinnur jafnframt við
stjórnendaþjálfun og ráðgjöf í áfallastjórnun (crisis management) til
fyrirtækja og stofnana.
Högni útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands 1972, lauk framhaldsnámi í
geðlækningum í Bandaríkjunum 1977 og starfaði áfram við New York Hospital og
Cornell Medical School til 1980. Frá þeim tíma starfaði við Landspítala til
1986 og hefur rekið eigin stofu í geðlækningum með áherslu á samtalsmeðferð
(psychotherapy). Hann hefur kennt við læknadeild HÍ og skipulagt
námskeiðshald um terapíu á vegum Þerapeiu. Hann er meðhöfundur að fjölda
vísindagreina í alþjóðlegum fræðiritum, auk þess hann hefur skrifað um
þjóðmál og forvarnir í fjölmiðla.


Hallfríður Þórarinsdóttir stýrir fundi og umræðum


Allir velkomnir


-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100311/e8a34a97/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list