[Gandur] Ímyndir og sjálfsmyndir - Ný fyrirlestraröð í ReykjavíkurAkademíunni

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Wed Jan 27 09:11:35 GMT 2010


*
*

*
*

*ÍNOR og ReykjavíkurAkademían kynna:*


**

*Fyrirlestrar um ímyndir og sjálfsmyndir.*

*
*

Fyrirlestrarnir verða haldnir í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121 frá
12:00 – 13:30 á föstudögum og *
*

*er fyrsti fyrirlesturinn núna á föstudaginn kemur 29. janúar*


**

Þau skil sem hafa orðið í íslenskri samfélagsumræðu á undanförnum misserum
kalla á umræðu og uppgjör af margvíslegu tagi, varðandi efnahagslíf,
stjórnmál, hugmyndir um samfélagið og ekki síst sjálfsmyndir Íslendinga.
Athygli hefur vakið hversu yfirlætisleg hin opinbera sjálfsmynd þjóðarinnar
var á stundum. Hluti þessarar sjálfsmyndar einkenndist jafnvel af því að
litið var niður á nágrannaþjóðir Íslendinga og sú hugsun orðuð að
Íslendingar gegndu sérstöku hlutverki í samfélagi þjóðanna, að þeir væru
útvaldir. Samhliða hefur einnig borið á annars konar hugmyndum sem hafa
einkennst af vantrú og tilætlunarsemi við aðrar þjóðir: Íslendingar væru svo
smáir og aðstæður svo sérstakar að ekki væri hægt að gera til þeirra sömu
kröfur og annarra þjóða.



Sú spurning hefur verið sett fram hvort þessar hugmyndir og umræður tengdar
þeim eigi rætur að rekja til þess að þjóðin hafi aldrei gert upp við
nýlenduarfleifð sína: í fyrsta lagi umræðuna sem tengdist
sjálfstæðisbaráttunni og birtist í vissu yfirlæti og kynþáttahyggju; í öðru
lagi óttann við „útlönd“, að stöðug hætta væri á ásælni erlendra ríkja; í
þriðja lagi þá hugsun að landsmenn væru ekki færir um að standa á eigin
fótum og yrðu því að njóta sérkjara og sérstakrar tillitssemi og stuðnings
umfram aðra. – Sú spurning hefur einnig verið sett fram hvort ef til vill
megi rekja þessa umræðu langt aftur í tímann.



Til þess að efla umræðu um þessi efni og leita svara við ofangreindum
spurningum hafa INOR (Rannsóknamiðstöð um ímyndir Íslands og Norðursins í
ReykjavíkurAkademíunni) og ReykjavíkurAkademían ákveðið að standa fyrir
fyrirlestraröð um þess efni.



*29. janúar: Guðmundur Oddur Magnússon, Táknmyndir þjóðarinnar - þá og nú.*

*12. febrúar: Sigurður Jóhannesson hagfræðingur, Þægileg blekking og beiskur
raunveruleiki.*

*26. febrúar: Helga Kress, „Ek em íslenskr maðr“. Íslendingurinn í
Íslendingasögum og viðtökum þeirra.*

*12. mars: Högni Óskarsson, Ísland, Narcissus á Norðurhveli.*

*9. apríl: Viðar Hreinsson, „Að hefjast í hærri stað og þaðan minnkast“. Um
kotungshátt. *

*16. apríl: Heiða Jóhannsdóttir, Sjálfsmynd í kastljósi fjölmiðla*

*30. apríl: Valur Ingimundarson, Ísland og "norðurslóðir": Goðsagnir,
ímyndir og stórveldahagsmunir*

*7. maí: Marion Lerner, Sjálfsmynd þjóðar við upphaf fjöldaferðamennsku á
Íslandi.*

*28. maí: Sumarliði R. Ísleifsson, Sjálfsmynd þjóðar og minnimáttarkennd*



Fyrirlestrarnir verða haldnir í ReykjavíkurAkademíunni frá 12:00 – 13:30


Hildigunnur Ólafsdóttir stýrir fundi og umræðum þann 29. Janúar.


-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100127/55504a0b/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list