[Gandur] Óskar Guðmundsson fjallar um ævisögu Snorra Sturlusonar nk. fimmtudag, 28. janúar, á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða

Eydis Bjornsdottir eydisb at gmail.com
Tue Jan 26 16:07:05 GMT 2010


---------- Forwarded message ----------
From: Yelena Sesselja Helgadóttir <sesselja at hi.is>
mætti ég biðja ykkur að gera okkur í Félagi íslenskra fræða þann greiða að
áframsenda meðfylgjandi tilkynningu á félagsmenn ykkar?

Með fyrirfram þökk og góðri  kveðju,
Yelena Sesselja



Góðir hálsar,

Fyrsta rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á þessu vormisseri verður
haldið næstkomandi fimmtudag, *28. janúar, kl. 20* í húsi Sögufélagsins,
Fischersundi 3. Þar flytur *Óskar Guðmundsson*, rithöfundur, fyrirlestur sem
hann nefnir *Um ævisögu Snorra Sturlusonar*. Höfundur lýsir erindi sínu á
þessa leið:

            Í fyrirlestrinum verður fjallað um tilurð sögunnar, og velt
vöngum yfir vinnubrögðum og viðhorfum gagnvart sígildum úrlausnarefnum þess
sem skrifar sagnfræðilegan texta: Hvernig á að skrifa aðgengilegan
bókartexta fyrir almenning þannig að hann sé fræðilega verjandi? Dansað á
gráu svæði.

            Brugðið verður upp myndum af nokkrum konum í ævi Snorra. Sumar
þeirra hafa birst í sögunni eins og huldukonur, en það má draga upp aðra
mynd af þeim. Hafa konur í íslenskri höfðingjastétt á þrettándu öld verið
vanmetnar?

            Þá verða dregnir fram nokkrir drættir úr sögunni um
stjórnmálamanninn Snorra ef tími vinnst til.

Óskar Guðmundsson, rithöfundur í Véum í Borgarfirði, lagði um hríð stund á
sagnfræði, þjóðfélagsfræði og bókmenntir við háskóla á Íslandi, Þýskalandi
og Danmörku. Hann starfaði í árafjöld sem blaðamaður og ritstjóri á
Þjóðviljanum, Helgarpóstinum, Norðurlandi og Þjóðlífi. Í hálfan annan áratug
hefur hann unnið sem sagnfræðingur og rithöfundur og skrifað m.a. sjö bækur
um miðaldir í bókaflokknum um Aldirnar. Hann er höfundur bókarinnar *Snorri*,
*ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241*, sem út kom fyrir síðustu jól.

Allir eru velkomnir.


Þá er Fréttabréf félagsins komið út. Fréttabréfið verður sent til meðlima
Félags íslenskra fræða en auk þess er það aðgengilegt öllum á vefsíðu
félagsins, http://islensk.fraedi.is.

Bestu kveðjur,
Sesselja Helgadóttir
formaður Félags íslenskra fræða
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100126/42904a5b/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list