[Gandur] Fyrir ári

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Jan 15 16:12:11 GMT 2010


Fyrir ári – sýning á Torgi Þjóðminjasafns Íslands
Laugardaginn 15. janúar verður opnuð sýning á gripum sem komu við sögu í 
mótmælunum í kjölfar efnahagshrunsins 2008 á Torgi Þjóðminjasafnsins. 
Þetta eru meðal annars mótmælaspjöld, ílát, dreifibréf, gashylki og fleira 
sem ýmist kom frá almenningi eða safnaðist á vettvangi. Ástæða þess að 
þessir gripir eru sýndir nú á meðan við stöndum enn í hringiðu atburðanna 
er að safnið vill leita álits hjá almenningi á því sem safnast hefur. 
Hvernig speglar safnið samtímann með þessum gripum? Eru þetta hlutirnir 
sem segja söguna? Öll erum við sérfræðingar í samtíma okkar og nú kallar 
safnið eftir aðstoð við að velja hvað á að varðveita til framtíðar. Hvað 
sýnir atburði áranna 2008 – 2009?

Það er ekki alltaf auðvelt að nota gripi til að varpa ljósi á söguna en 
hlutverk safna er engu að síður að varðveita heimildir um tíðaranda og 
atburði. Í Þjóðminjasafninu má til dæmis finna höggstokk þar sem 
nafngreint fólk var gert höfðinu styttra, kórkápu Jóns Arasonar, 
kaffikvörn Eggerts og Bjarna og húsgögn Jóns Sigurðssonar. Allt hlutir sem 
bera ákveðnu fólki og  atburðum vitni.
Gripir eru varðveittir fyrir framtíðina svo hægt verði að rannsaka þá og 
sýna  eftir 2, 50 eða 350 ár. Nú er unnið að söfnun gripa sem endurspegla 
þá tíma sem við lifum og gestir dagsins í dag eru beðnir að segja álit 
sitt á því sem safnað hefur verið til að gefa sem besta mynd af 
tíðarandanum. Hægt verður að skilja hugleiðingar eftir á staðnum eða á vef 
sýningarinnar á www.thjodminjasafn.is
Safnið hefur einnig áhuga á því að fá til varðveislu ljósmyndir teknar á 
vettvangi mótmælanna hvort heldur stafrænar myndir eða pappírsmyndir. 
Myndirnar verða síðan varðveittar í safninu með sérstöku samkomulagi við 
höfunda þeirra. Úrval þeirra mun verða sett upp á sýningunni um leið og 
þær berast. Senda má myndir á netfangið 
jonas.hallgrimsson at thjodminjasafn.is
Samhliða sýningunni sendir safnið út spurningaskrá um kreppuna sem verður 
aðgengileg á heimasíðu safnsins og á sýningunni og eru áhugasamir hvattir 
til að svara henni. 
Nánari upplýsingar má fá á vef Þjóðminjasafnsins www.thjodminjasafn.is
Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100115/8eae1672/attachment.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 11266 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100115/8eae1672/attachment.gif 


More information about the Gandur mailing list