[Gandur] Fiskur undir steini

sjf at internet.is sjf at internet.is
Wed Feb 24 07:03:58 GMT 2010


Okkur væri sönn ánægja að bjóða þér/ykkur á kynningu á menningu  og
ferðaþjónustu 2010 sem haldinn verður laugardaginn 27. febrúar í
Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a, Grindavík,  frá kl. 13.00 – 17.00.

Kl. 13:00 
Viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og Grindavíkurbæjar  2010,
Kristinn Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi kynnir viðburðamikla
dagskrá ársins. Viðburða- og menningardagskrá verður  á heimasíðu Grindavíkur
grindavik.is
Kl. 13:10
AF STAÐ á Reykjanesið,  menningar- og sögutengdar gönguhátíðir. Sigrún Jónsd.
Franklín menningarmiðlari kynnir.
Kl. 13:20
Náttúruvika á Reykjanesi, ýmsir dagskrárliðir sem kynna náttúru, sögu og
menningu á Reykjanesskaga. Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari kynnir.
Kl. 13:35
Grindavík Experience, ýmiss fyrirtæki í ferðaþjónustu kynna starfsemi sína s.s.
Fjórhjólaferðir, Stakkavík (Upplifðu fisk)
Kl. 13:45
Markaðsstofa Suðurnesja, Kristján Pálsson framkvæmdastjóri kynnir starfsemi
Markaðsstofu m.a. nýja vefsíðu visitreyknanes.is. og verkefni Ferðamálasamtaka
Suðurnesja.
Kl. 14:00 – Tónlistaratriði / matarsmakk (Aðal-Braut) / kaffi
Kl. 14:20
FERLIR, Ómar Smári Ármannsson göngugarpur o.fl. kynnir söguskilti sem hafa
verið sett upp á sjö stöðum  í Grindavík og jafnframt mestlesnu heimildasíðu um
Reykjanesskagann, ferlir.is.
Kl. 14:40
Eldfjallagarður, kynntar hugmyndir að samnefnara fyrir sérstöðu
Reykjanesskagans sem geti tengt saman hinar fjölbreyttu auðlindir svæðisins og
markað stefnu um nýtingu og verndun hans.
Kl. 15:00 „Fiskur undir steini“ sýning á  samnefndri sjónvarpsmynd (30 min.)
sem  olli miklu umtali um  menningu í sjávarþorpum á sínum tíma.
Kl. 15:30
Matur á heimaslóð, kynning á mat og veitingastöðum. (Veitingastofan Vör,
Salthúsið, Saltfisksetrið). 
Tónlistaratriði

Kynningunni er ætlað að gefa innsýn í menningu og ferðaþjónustu og jafnframt
efla samstarf.
Matarsmakk, ferðavinningar og allir velkomnir

Nánari upplýsingar.
Kristinn Reimarsson f.h. Grindavíkurbæjar  kreim at grindavik.is gsm. 6607310
Óskar Sævarsson, f.h. Saltfiskseturs oskar at saltfisksetur.is gsm 6607303
Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari sjf at internet.is gsm. 6918828
www.grindavik.is   www.saltfisksetur.is  www.sjfmenningarmidlun.is

 


More information about the Gandur mailing list